Þegar sænska ríkið tekur í neyðarbremsuna og hættir stuðningi við Islamic Relief, þá heldur sænska kirkjan áfram samstarfi sínu við íslömsku stofnunina. Í viðtali við Samnytt segir stjórnmálafræðingurinn og hryðjuverkarannsakandinn Magnus Norell að samstarf kirkjunnar við Islamic Relief sé ekki hægt að skýra eingöngu með grandvaraleysi og barnaskap, heldur sé um meðvitaða hugmyndafræðilega ákvörðun að ræða sem stuðlar að því að gera stjórnmálalegt íslam að raunveruleika í Svíþjóð.
Magnus Norell er stjórnmálafræðingur, rithöfundur og einn þekktasti rannsakandi og greinandi Svíþjóðar á sviði íslam, stjórnmálalegs íslams og ofbeldisfullrar öfgahyggju. Hann hefur rannsakað íslamistahreyfingar í Mið-Austurlöndum og Evrópu í áratugi, með sérstakri áherslu á Múslímabræðralagið, umhverfi heilagastríðsmenningar og hvernig hugmyndafræðileg net starfa innan borgaralegs samfélags og stofnana á Vesturlöndum.
Norell hefur unnið að fjölda rannsóknarverkefna og hefur ítrekað verið ráðinn sem sérfræðingur af yfirvöldum, fjölmiðlum og alþjóðlegum aðilum um málefni sem tengjast öfgahyggju, öryggi og hugmyndafræðilegum áhrifum.
Þróunarstofnun Svíþjóðar Sida hættir öllu samstarfi við Islamic Relief
Sænski miðillinn Samnytt hafði samband við Magnus Norell í tengslum við að sænska kirkjan heldur áfram samstarfi sínu við íslömsku hjálparsamtökin Islamic Relief. Samstarf sem núna sætir harðri gagnrýni frá mörgum meðal annarra Norell. Norell segir við Samnytt:
„Það er ekki hægt að skýra þetta með grandvaraleysi. Menn vita hvað þeir eru að gera.“
Þegar þróunarstofnunin Sida hætti öllum stuðningi við íslömsku hjálparsamtökin í Svíþjóð í byrjun ársins vísuðu stjórnvöld til ítarlegrar endurskoðunar og beitingar varúðarreglu. Samkvæmt Sida var ekki hægt að útiloka að hjálparsamtökin tengdust öfgafullu eða andlýðræðislegu umhverfi, þar sem Múslímabræðralagið hefðu mest ítök. Magnus Norell segir um Múslímabræðralagið:
„Þetta snýst um íslamíska, hommafóbíska og gyðingahatursfulla hreyfingu. Hreyfingu sem vill að Gyðingar í Svíþjóð hverfi eða verði drepnir. Þeir stefna að hliðarsamfélagi, sem þeir sjálfir kalla múslímskt borgaralegt samfélag og þeir líta á sig sem fulltrúa íslams.“
Afstaða sænsku kirkjunnar er pólitísk afstaða fyrir íslam í Svíþjóð
Sænska kirkjan stendur fast á sínu. Samstarf og trúarleg umræða heldur áfram við samtökin eins og ekkert sé, þrátt fyrir úrsögn ríkisins. Þegar sænska kirkjan var spurð, hvar hún stæði gagnvart þeirri staðreynd að ríkisstofnunin Sida endurnýjaði ekki stuðning Svíþjóðar við íslömsku hjálparsamtökin, þá svaraði kirkjan á vefsíðu sinni:
„Við fylgjumst með málinu. Almennt má segja að sænska kirkjan hafi áhyggjur af óvissunni sem margar stofnanir hafa um núverandi fjármögnun sína. Sida vísar til varúðarreglunnar í mati sínu. Það er mikilvægt að fá skýrar upplýsingar frá Sida um hvernig þessari varúðarreglu er beitt við framkvæmd valds til að viðhalda trausti og tryggja réttaröryggi og fyrirsjáanleika.“
Islamic Relief hefur neitað tengslum við öfgahyggju og Múslímabræðralagið, en staðfestir jafnframt að samtökin séu ekki lengur í samstarfi við Sida. Magnus Norell bendir á áberandi mótsetningu milli aðgerða ríkisins og kirkjunnar:
„Það er merkilegt að kirkjustofnun geri vægara áhættumat en þróunarstofnun ríkisins í málum sem varða pólitískt íslam.“
Fasistar bjuggu til orðið íslamófóbía sem hugleysingjar nota til að stjórna fávitum
Samkvæmt Norell byggir afstaða sænsku kirkjunnar á hugmyndafræðilegri sannfæringu.
„Ég held ekki að þetta snúist bara um barnaskap. Það krefst vitsmunalegrar áreynslu að vera svona barnalegur. Þetta er meðvitað val. Kirkjan er að löggilda pólitískt íslam í Svíþjóð. Múslímabræðralagið þarf ekki að beita ofbeldi í Svíþjóð. Þeir fá það sem þeir vilja engu að síður; lögmæti, aðgang og áhrif.“
Sænska kirkjan, eins og ESB, Sameinuðu þjóðirnar, sænska hjálparstofnunin fyrir trúarfélög og utanríkisráðuneytið vísa til þess að Islamic Relief neiti tengslum við Múslímabræðralagið. Þeim rökum hafnar Norell algjörlega:
„Þegar þeir segjast ekki tilheyra Múslímabræðralaginu, þá meina þeir að það sé engin formleg aðild. En það er engin aðild. Þetta er leið til að komast undan. Það er ekki sjálfbært á neinu stigi að einfaldlega samþykkja eigin afneitun samtakanna. Múslímabræðralagið er hreyfing íslamista, homma- og gyðingahatara. Hreyfing sem vill að Gyðingar í Svíþjóð hverfi eða verði drepnir. Þeir stefna að hliðarsamfélagi, sem þeir sjálfir kalla hið múslímska borgaralega samfélag og líta á sig sem fulltrúa íslams. Fasistar bjuggu til orðið íslamófóbía sem hugleysingjar nota til að stjórna fávitum.“
