Vesturlöndum er stjórnað af ólígörkum – þess vegna eru stjórnmálin svona „brjáluð“

Vesturlöndum er í raun stjórnað af ólígörkum/fjármálafurstum. Þess vegna fær fólkið aldrei það sem það raunverulega kýs og vill, fullyrðir rithöfundurinn Alex Krainer í nýju viðtali (sjá YouTube að neðan). Vald fámennisstjórnarinnar skýrir þá „algjörlega brjáluðu“ stefnu sem Vesturlönd stunda, eins og að fanga og grafa koltvísýring í jörðina, segir hann.

Rithöfundurinn Alex Krainer segir í viðtali við stjórnmálafræðinginn Glenn Diesen, að Vesturlönd séu ekki raunverulegt lýðræði heldur sé stjórnað af fámennisstjórn.

Lýðræðið er í reynd bara leiktjöld.

„Kerfinu er í raun stjórnað af fámennisstjórn, segir hann. Þess vegna skila samfélög okkar, lýðræðisríki okkar, alls ekki því sem fólkið vill.“

„Þegar fólk fer að kjósa vill það velmegun, betri lífskjör, frið og öryggi. En einhern hátt fær það fjármálakreppur, kúgun, ritskoðun, öryggisleysi, versnandi lífskjör, innviði sem eru að hrynja og eilíf stríð erlendis í staðinn. Þannig að það er greinilega eitthvað sem virkar ekki eins og það á að gera.“

Hann bendir á að kerfið skili ekki því sem það segist skila. Og flest stríð í heiminum eru hafin af svo kölluðum lýðræðisríkjum, að sögn Krainer, sérstaklega Bandaríkjunum og Bretlandi.

Til að leysa þetta verður að skilja hvert grundvallarvandamálið er:

„Að mínu mati er vandamálið að okkur er í raun stjórnað af ólígörkum, sem alls ekki eru látnir sæta ábyrgð.“

Að sögn Alex Krainer hefur Rússland sýnt hvernig á að gera þetta. Vladímír Pútín stöðvaði pólitískt vald ólígarkanna og í kjölfarið fylgdi mikill efnahagsvöxtur. Rússland gaf ekki eftir miklum viðskiptaþvingunum Vesturlanda vegna Úkraínustríðsins.

„Þetta eru afleiðingar þess að valdið var tekið úr höndum ólígarkanna en það er óhugsandi á Vesturlöndum. Pútín gæti kallað alla fjármálafurstana til Kreml og sett þeim reglurnar. Það er óhugsandi að bandarískur forseti, breskur forsætisráðherra eða franskur forseti gæti stillt upp fjármálajöfrumog sagt þeim hvar skápurinn á að standa.

Hjá okkur eru „forsætisráðherrar og forsetar undirgefnir ólígörkunum“ segir Alex Krainer.

Fara efst á síðu