Vesturlandabúar – annars flokks borgarar í eigin ríkjum

Menóra var tendruð á seglum Óperuhússins í Sydney eftir hryðjuverkaárásina á Bondi-ströndinni þar sem að minnsta kosti 15 létust og yfir 40 særðust.

“Hamas mun ekki afvopnast, láta af hendi vopn sín, stjórna Gazaströndinni eða leyfa utanaðkomandi eftirlit á Gazaströndinni,” endurtók leiðtogi hryðjuverkasamtakanna í dag. Vá, hver hefði getað ímyndað sér það? Enn… ENN einu sinni uppgötva vestrænir leiðtogar að það er álíka gáfulegt að semja við morðóða hryðjuverkamenn og við höggorma.

Markmið Hamas og íslamskra öfgasinna um að útrýma Gyðingdómi og Ísrael er ekki aðeins vandamál Gyðinga og Ísraels. Það er vandamál Vesturheims. Vart líður sú vika að ekki berist fréttir af hryðjuverkum tengdum Íslam eða samsærum um þau.

indiatoday/Skotmennirnir á Bondi Beach í Ástralíu

“Miklar hryðjuverkarógnir” eða “almennar öryggisáhættur”?

Árið 2025 byrjaði með 14 morðum í New Orleans þegar ISIS öfgamaður ók bíl inn í mannfjölda á nýársdegi. Í Ástralíu byrjaði ljósahátíð Gyðinga 14. desember sl. með skotárás íslamskra hryðjuverkamanna, föður og sonar; 15 létu lífið og yfir 40 særðust. Víða um Frakkland, Austurríki og Þýskaland var hefðbundum jóla- og nýárshátíðum aflýst vegna “mikilla hryðjuverkaógna.” FBI stöðvaði nýlega hryðjuverkasamsæri um fimm árásir í Los Angeles á gamlárskvöld. Í París var hefðbundnum gamlárskvöldstónleikum á Champs-Élysées aflýst. Ónefndar heimildir segja ástæðuna vera „mjög mikla hryðjuverkaógn” og sex samsæri fyrr á árinu og “ófyrirsjáanlegt ofbeldi sem tengdist innflytjendum frá úthverfum Parísarborgar,” en borgaryfirvöld sem óttast íslamska fílinn innan um stofustássið neituðu hryðjuverkaógn, bara “almennar öryggisáhættur sem fylgja svo stórum samkomum.” Bara í ár, nota bene.

Hugleysi vestrænna leiðtoga

Þessi viðbrögð eru dæmigerð fyrir hugleysi vestrænna leiðtoga. Í stað þess að viðurkenna að dauðadýrkandi sértrúarsöfnuður fastur í 7. öldinni er tilvistarógn við Vesturheim, hafa leiðtogar Vesturlanda fallið saman eins og gamlir garðstólar og leyft íslömskum jihadistum að undiroka vestræna borgara, sem hafa verið neyddir til að gefa upp eigin jólahátíðir; þeir mega ekki einu sinni kvarta yfir því, því leiðtogarnir hafa kúgað eigin borgara til að þegja um vandamálið, ellegar dúsa í fangelsi fyrir “íslamófóbíu” – eins og Íslam sé kynþáttur en ekki hugmyndafræði – fyrir að móðga íslamistanna sem hefur verið leyft að taka yfir lönd þeirra. Leiðtogar Vesturlanda hafa leyft vestrænum borgurum að verða dhimmis – annars flokks borgarar í eigin löndum og í stað þess að styðja baráttu eina lýðræðis Arabaheims við öfgar Íslam hafa þeir stutt öfgasinnana með ráðum og dáð.

Íris Erlingsdóttir er fjölmiðlafræðingur

Fara efst á síðu