Varaforseti Bandaríkjanna: ESB og Úkraína reyna að hafa áhrif á kosningarnar í Ungverjalandi

Varaforseti Bandaríkjanna, JD Vance, heimsækir Ungverjaland í vikunni til að veita forsætisráðherranum Viktor Orbán stuðning sinn fyrir þingkosningarnar á sunnudag. Vance lofar forystu Orbáns samtímis sem hann beinir harðri gagnrýni að embættismönnum ESB í Brussel, sem hann sakar um að reyna að skaða ungverskt efnahagslíf og hafa áhrif á kosningarnar. Hvíta húsið heldur því einnig fram að Úkraína reyni að hafa áhrif á úrslit kosninganna í Ungverjalandi.

Bandaríski varaforsetinn JD Vance heimsækir Orbán í tvo daga fyrir kosningarnar um helgina í Ungverjalandi, þar sem glóbalistar ESB berjast hart til að koma Viktor Orbán frá völdum.

Vance hefur markað sér stöðu sem harður gagnrýnandi ESB og hann lofaði ungverska forsætisráðherrann sem leiðtoga sem „stendur vörð um orkuöryggi.“ Enn fremur lítur Trump-stjórnin á Ungverjaland sem „vörn vestrænnar siðmenningar“ í Evrópu. Hann spurði:

„Hvers vegna eru búrókratarnir í Brussel að stýra samfélagsmiðlum um hvað má sega við almenning í Ungverjalandi?“

Á blaðamannafundi í Búdapest í dag við hliðina á Orbán veitti Vance skýran pólitískan stuðning og lagði áherslu á að stefna ungversku ríkisstjórnarinnar væri fyrirmynd fyrir alla Evrópu.

Versta dæmið um erlend afskipti af kosningum

Hann gagnrýndi leiðtoga ESB í Brussel og sagði að þar væri hópur embættismanna sem stundaði kosningaafskipti þar sem Orbán andmælir stefnu þeirra. JC Vance sagði:

„Það sem hefur gerst í þessu landi, það sem hefur gerst mitt í þessari kosningabaráttu, er eitt versta dæmi um erlend afskipti af kosningum sem ég hef nokkru sinni séð eða jafnvel lesið um.“

JD Vance sagði og benti á Orbán:

„Embættismennirnir í Brussel hafa reynt að eyðileggja efnahag Ungverjalands, þeir hafa reynt að gera Ungverjaland minna sjálfstætt í orkumálum, þeir hafa reynt að hækka kostnað fyrir ungverska neytendur. Þeir hafa gert allt þetta vegna þess að þeir hata þennan mann.“

Það sem ég myndi hvetja ungversku þjóðina til að gera er að spyrja sig – ekki hver er með eða á móti Evrópu, ekki hver er með eða á móti Bandaríkjunum – heldur hver er með ykkur, hver er með ungversku þjóðinni.“

Bandaríski varaforsetinn segir að markmið ESB að skaða Orbán sé vegna þess að hann er ekki sammála stefnu ESB:

„Þeir tala um orkukreppu, þeir ættu að gera eins og Orbán. Verði’ hækkar hér líka en minna en annars staðar.“

Sakar Úkraínu um kosningaafskipti

Vance hélt því einnig fram að úkraínska leyniþjónustan reyndi að hafa áhrif á kosningarnar um helgina í Ungverjalandi meðal annars samkvæmt Euronews. Hann sagði:

„Við erum klárlega meðvituð um að hlutar úkraínsku leyniþjónustunnar reyna að hafa áhrif á úrslitin.“