Aðvörun: „Heimshagkerfið mun örugglega hrynja“

Richard Werner telur að ESB muni nýta sér orkukreppuna m.a. til að koma á stafrænu eftirlit með öllum einstaklingum.

Uppfærð frétt. Tímamörkin sem Bandaríkjaforsetti setti Íran er á miðnætti í nótt að íslenskum tíma (ekki bandarískum eins og skrifað var áður. Tímamörkin eru 8 pm að bandarískum tíma).

Menn bíða með andann í hálsinum yfir því, hvað nýju stjórnendur Íran munu gera varðandi Hormússundið. Trump hótar eldi og brennisteini ef Íran opnar ekki sundið fyrir skipaferðum olíuflutningaskipa fyrir miðnætti að íslenskum tíma. Hann sagði á blaðamannafundi í gær að honum þætti miður að þurfa koma með slíkar hótanir og það væri ekkert sem hann vildi gera. Hins vegar yrðu menn að skilja alvöru málsins vegna þýðingu sundsins fyrir flutning á olíu frá Arabaríkjunum.

Margir leggja orð í belg varðandi Íran stríðið og draga sumir upp dökka mynd af ástandinu haldi stríðið áfram. Þannig varar hagfræðingurinn Richard Werner við þvi að Evrópusambandið muni ekki draga úr orkukreppunni sem stafar af Íranstríðinu. Werner segir að ESB muni nýta sér hana til að gera það sem þeir vildu gera á tímum covid: Að innleiða stafrænt eftirlit með einstaklingum.

Í nýjum þætti af PBD Podcast (sjá youtube að neðan) ræða greinandinn Luke Gromen og hagfræðingurinn Richard Werner hugsanlegar afleiðingar Íranstríðsins. Gromen heldur því fram, að heimshagkerfið geti ekki lifað af að tapa 7 – 11% af olíuframboði í heiminum:

„Hagkerfið mun ekki lifa það af. Við getum rætt hvort Evrópa muni hrynja fyrst, hvort Suðaustur-Asía muni hrynja fyrst eða hvort Ameríka muni hrynja fyrst. En það er öruggt að heimshagkerfið mun hrynja ef framboð af olíu skerðist verulega.“

Að sögn Gromen gæti hrunið orðið þegar um miðjan apríl. Hann bendir til dæmis á að sum flugfélög geti ekki lengur fengið flugeldsneyti, sem þýðir að ferðaþjónustan dregst saman. Á sama tíma er ekkert gert til að stöðva þetta, að hans mati:

„Enginn virðist hafa áhyggjur. Engar mótaðgerðir eru gerðar. Það eru til aðrar leiðir. Það eru hlutir sem hefði verið hægt að gera ef vilji væri til staðar. Þeir gera það ekki. Hvers vegna? Vegna þess að þetta þjónar annarri dagskrá sem er í gangi og við megum ekki gleyma henni. Og hún er sú að miðstýrendur í ESB vilja skipuleggja meira og meira.

Og það lítur út fyrir að þeir muni nýta þetta tækifæri til að innleiða stafrænt eftirlit og takmarkanir á einstaklingsfrelsi sem verða að minnsta kosti jafn slæmar og á tímum covid-hysteríunnar eða verri! En núna og að sjálfsögðu með þeirri afsökun að það sé ekki til nein orka, þú verður að vera heima, þú mátt ekki nota bílinn þinn. Það lítur út fyrir að það sé það sem þeir vilja gera. Því það voru margar ákvarðanir teknar áður en Hormússundinu var lokað sem benti til þess að þeir vildu innleiða takmarkanir á orkunotkun…

Enginn andmælir þeim, því þetta er einræði. Þeir geta gert hvað sem þeim sýnist. Þeir geta fangelsað fólk án lagalegs grundvallar. Þeir geta beitt fólk refsiaðgerðum án ástæðu og það er það sem er að gerast.“

Hér að neðan má sjá allan þáttinn:

Blaðamannafundur Donald Trump annan páskadag: