Evrópskir glóbalistar hata Rússland meira en þeir elska sjálfa sig
Áður en hernaðarátökin hófust í Íran var Evrópusambandið fast í djúpri orkukreppu, vegna þess að ESB útilokar ódýrt rússneskt gas. Á sama tíma er „Núll-losunar” draumórar alls ráðandi og olíu afneitað í þágu „endurnýjanlegrar orku.“
Núna þegar Hormuz-sundið er lokað og olíuverð hækkar, þá er ástandið byrjað að lama efnahagskerfi gamla meginlandsins.
Samkvæmt hinum hreinskilna forsætisráðherra Slóvakíu, Robert Fico, er lausnin einföld: Evrópusambandið verður að aflétta refsiaðgerðum á innflutningi rússneskrar olíu og gasi, grípa til aðgerða til að endurheimta flæði Druzhba-olíuleiðslunnar og binda enda á stríðið í Úkraínu.
The European Commission is attacking Slovakia's key interests and, in coordination with Zelenskyy, is incomprehensibly endangering the energy security of the continent. pic.twitter.com/2G7BSrX3h9
„Fico sagði í yfirlýsingu eftir símtal við forsætisráðherra Ungverjalands, Viktor Orbán, að Evrópusambandið ætti að endurnýja samtal við Rússland og tryggja skilyrði þannig að aðildarríki geti fengið að kaupa gas og olíu frá öllum uppsprettum, þar á meðal frá Rússlandi.
Leiðtogar Ungverjalands og Slóvakíu eru undantekningar innan ESB hvað varðar að viðhalda samskiptum við Moskvu.
Olíuverð hefur hækkað síðan árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran hófust 28. febrúar, sem hefur tafið sendingar frá Persaflóa og skapað það sem Alþjóðlega orkustofnunin kallaði mesta truflun á olíuframboði í sögunni.“
I AM NOT CALLING FOR ANYTHING ELSE BUT THE RETURN OF COMMON SENSE. THE ENTIRE EU, AND ESPECIALLY THE EUROPEAN COMMISSION, ARE BEGINNING TO RESEMBLE A SHIP OF SUICIDES WHEN IT COMES TO ENERGY SECURITY.
Today’s phone call with Hungarian Prime Minister @PM_ViktorOrban also…
„ÉG ER EKKI AÐ KALLA EFTIR NEINU ÖÐRU EN AÐ SKYNSEMIN SNÚI AFTUR. ALLT ESB, OG SÉRSTAKLEGA FRAMKVÆMDASTJÓRN EVRÓPUSAMBANDSINS, ER AÐ BYRJA AÐ LÍKJAST SJÁLFSMORÐSSKIPI ÞEGAR KEMUR AÐ ORKUÖRYGGI.
Símtal dagsins í dag við forsætisráðherra Ungverjalands, @PM_ViktorOrban, staðfesti einnig að við getum ekki tekist á við hina gríðarlegu orkukreppu ein og sér á landsvísu.
Engu að síður eru stjórnvöld í Slóvakíu og Ungverjalandi að gera allt sem þau geta til að vernda þjóðarbúskap sinn og borgara fyrir hugmyndafræðilegri blindu og vanhæfni framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, illum vilja forseta Úkraínu og afleiðingum stríðsins gegn Íran.
ESB, og sérstaklega framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, ætti tafarlaust að hefja á ný samtal við Rússland og tryggja slíkt pólitískt og lagalegt umhverfi að einstök aðildarríki og ESB í heild geti bætt upp skort á gasi og olíu og tryggt framboð þessara lykilauðlinda frá öllum mögulegum uppsprettum og leiðum, þar á meðal frá Rússlandi.
Þess vegna ætti að aflétta þeim tilgangslausu refsiaðgerðum sem banna innflutning á gasi og olíu frá Rússlandi, hefja sérstakt frumkvæði ESB til að binda enda á stríðið í Úkraínu hratt og grípa til afgerandi aðgerða til að endurheimta starfsemi Druzhba-olíuleiðslunnar.“