Í sharía-ríki eins og Íran eru engir borgarar, engir „kjósendur“ ríkisstjórnar, aðeins þegnar og stjórnendur. Allt tal nytsömu idjótanna á Íslandi og Vesturlöndum um „borgaralega innviði” er blekking og bull.
Á meðan fjölmiðlar og nytsöm idjót á Vesturlöndum, sem í andstöðu sinni við Bandaríkjamenn þjóna jihad markmiðum írönsku alræðisstjórnarinnar, óskapast yfir árásum Bandaríkjamanna á „borgaralega innviði” (“civilian infrastructure”) í Íran, veit íranska þjóðin, sem hatar sharia ofsatrúar-alræðisstjórnina, að öðruvísi er ekki unnt að sigra hana. Andrew McCarthy útskýrir í grein í National Review að rétt eins og íranska sharía-ríkið á ekkert sameiginlegt með vestrænum ríkjum, er merking „innviða” einnig gjörólík. Allt tal um „borgaralega“ innviði í Íran er blekking og bull. „Borgaralegir innviðir” í Íransríki, sem var stofnað árið 1979 undir sharía-kerfi klerkaræðis Khomeinis og er nú stjórnað af írönsku byltingargæslunni, tilheyra stjórnendum, ekki borgurunum.
Íran er ekki fjölbreytt vestrænt hagkerfi þar sem öflugur einkageiri hefur reist flesta innviði til hagsbóta fyrir borgarana, heldur eru innviðirnir undir stjórn alræðisstjórnarinnar og gagnast þeim. Íranska byltingargæslan fær mest allar orkutekjur og stjórnar um tveimur þriðju hluta landsframleiðslunnar. Írönsk stjórnvöld—líkt og Hamas jihadistahreyfingin sem þau þjálfuðu, vopnuðu og styrktu fjárhagslega—notar innviði sem virðast „borgaralegir“ til að fela hermenn og vopn. Innviðirnir, þar með talið raforkukerfi og brýr og önnur samgöngumannvirki, eru þannig viðurværi byltingargæslunnar.
Íranska sharia-stjórnin viðurkennir ekki „borgara“
„Borgari“ er vestræn hugmynd, byggð á vestrænum skilningi á sambandi einstaklingsins við ríkið og borgaralegum réttindum hans, sem ríki eru stofnuð til að stuðla að og vernda. Í sharía-ríki eins og Íran eru engir borgarar, engir „kjósendur“ ríkisstjórnar, aðeins þegnar og stjórnendur. Það eru engir „borgarar“ í vestrænum skilningi í Íran. Íranska byltingargæslan (IRGC) notar „innviðina” til að ná fram hernaðarlegum markmiðum sínum í hinu „heilaga” stríði við Bandaríkin og Ísrael.
Skylda stjórnar er að fylgja og framfylgja sharia – lögum og samfélagsramma íslams, eins og þau hafa verið túlkuð frá sjónarhorni íslamskra ofsatrúarmanna í árþúsundir. Skylda þegnanna er að hlýða. Þegnar hafa ekki borgaraleg réttindi í vestrænum skilningi. Ástæðan fyrir Cairo-yfirlýsingunni frá 1990 um mannréttindi (tal um “mannréttindi” í íslam er refhvörf/oxymoron) innan íslamskra þjóða var sú að yfirlýsingin um mannréttindi frá 1948, sem hrokafullir vestrænir vinstrimenn lýstu sem „alþjóðlegri,“ er ósamrýmanleg meginreglu íslams um að menn hafi aðeins þau réttindi og skyldur sem settar eru fram í íslömskum ritningum, sem eru grundvöllur sharia. Íslömsk lög hafna meginreglum um frelsi, sjálfsákvörðunarrétt og jafnrétti fyrir lögum.
Jihad og dauði

Íran er leiðandi ríki heims í fjármögnun and-amerískrar og and-vestrænnar jihadista-hryðjuverkastarfsemi. Stjórnin hatar einnig Ísrael (nánar tiltekið Gyðinga), en aðalóvinur hennar er og hefur alltaf verið Bandaríkin. Frumskyldan í sharia hugmyndafræði íranskra stjórnvalda er að heyja „heilagt” stríð—jihad—gegn óvinum Allah, sérstaklega þeim sem ekki viðurkenna sharía og yfirburði íslam. Ef írönsk stjórnvöld—sem nýlega myrtu 40.000 íranska mótmælendur, sem reyndu að rísa upp gegn henni, rétt eins og klerkastjórnin myrti, fangelsaði og pyntaði hundruð þúsundir Írana síðustu hálfa öldina—fengju kjarnorkuvopn myndu þau halda áfram að þróa eldflaugagetu til að auka ógnir gegn bandarískum hagsmunum í Persaflóa og víðar, þar með talið gegn þjóðum eins og Íslandi (margir Íslendingar, eins og nytsömu idjótin á Vesturlöndum, halda að þeim stafi engin hætta af íslömskum ofsatrúaröflum. Þeir trúa að íslömsku múllarnir verði bestu vinir vinstri; þeir muni aðeins afhausa íhaldsmenn, sem er í fínu lagi þeirra vegna).
Það sem við á Vesturlöndum erum svo fávís að kalla „borgaralega innviði“ í Íran er í raun lífæð sharía-einræðisstjórnarinnar sem þrælbindur og myrðir Írana á meðan hún heyr „heilagt stríð” gegn Bandaríkjunum og Ísrael.
Andrew McCarthy: The Iranian Sharia-Supremacist Regime and ‘Civilian’ Infrastructure
https://www.nationalreview.com/2026/04/the-iranian-sharia-supremacist-regime-and-civilian-infrastructure/
