Viðskiptablaðið greinir frá því í kvöld að meirihluti landsmanna sé andvígur aðild að Evrópusambandinu. Af þeim sem tóku afstöðu segjast 54% vera andvíg inngöngu Íslands en 46% segjast hlynnt.
„Andstaða landsmanna gagnvart aðild Íslands að Evrópusambandinu hefur aukist töluvert á síðustu 12 mánuðum. Þetta kemur fram í nýrri könnun, sem Gallup gerði fyrir Viðskiptablaðið.
Samkvæmt könnuninni eru 47% andvíg því að Ísland gangi í Evrópusambandið, 40% eru hlynnt inngöngu og 13% segjast hvorki hlynnt né andvíg. Spurt var: Ert þú hlynnt(ur) eða andvíg(ur) því að Ísland gangi í Evrópusambandið (ESB)?
Þegar eingöngu er litið á þá sem tóku afstöðu til spurningarinnar er niðurstaðan sú að 54% eru andvígir inngöngu í ESB og 46% hlynnt.”

