Forseti Bandaríkjanna, Donald Trump, segir að hann haldi Hormússundinu lokuðu svo Íran geti ekki grætt allt að hálfum milljarði dollara á dag.
Á blaðamannafundi í gær útskýrði forseti Bandaríkjanna, Donald Trump, að Íran hafi viljað opna Hormuzsundið fyrir þremur dögum en að hann hafi ákveðið að halda því lokuðu:
„Þeir höfðu opnað það fyrir þremur dögum. Þeir komu til okkar og sögðu: „Við samþykkjum að opna sundið.“ Allt mitt starfsfólk var ánægt. Allir voru glaðir nema ég. Ég sagði: „Bíðið aðeins, ef við opnum sundið þýðir það að þeir munu þéna 500 milljónir dollara á dag. Ég vil ekki að þeir þéni 500 milljónir dollara á dag fyrr en þeir leysa þetta. Þannig að ég er sá sem held sundinu lokuðu.“
