Yfirmaður sænska hersins varaði við því að Rússland gæti tekið eyjuna Gotland „hvenær sem er“ á sama tíma og óstaðfest myndefni virðist sýna bílalest Pútíns á hraðferð til Kremlar. Þannig hefst grein Daily Express, US, sem greinir frá Rússagrýlu Svía.
Blaðið hefur nokkuð til síns máls. Nýlega greindi sænska sjónvarpið SVT frá Nató æfingu á Gotlandi, þar sem pólskum hermönnum var flogið til Gotlands til að taka þátt í vörnum vegna hugsanlegrar árásar Rússa sem vildu taka eyjuna. Gotland hefur sérstaka hernaðarþýðingu sem eyja í miðju Eystrasalti og samkvæmt þrálátum yfirlýsingum sænskra ráðamanna er afar líklegt að Rússar hefji árásir á Svíþjóð með því að taka Gotland.
Yfirhershöfðingi Svíþjóðar nærist á Rússagrýlunni og það líður varla sá dagur í Svíþjóð að ekki sé hótað með innrás Rússa og hugsanlegir staðir nefndir, þar sem þeir myndu vilja sprengja í innrásinni. Í viðtali við The Times varar Michael Claesson yfirhershöfðingi Svíþjóðar við því að Rússar muni hvenær sem er kanna varnarviðbrögð Nató með sjóhernaði í minni skala á Eystrasalti í stað heildarárás á Nató ríkin. Þess vegna væri mikilvægt fyrir Norðurlönd og Eystrasaltsríkin að efla varnir sínar og sýna fælingarmátt á þessum slóðum.
Leynilögreglan Säpo segir í skilgreiningu sinni um öryggi Svíþjóðar að Rússland sé stærsta ógnin við öryggi Svíþjóðar. Í Noregi segir Eirik Kristoffersen yfirmaður hersins að Nató hafi í mesta lagi þrjú ár á sér að undirbúa sig fyrir stríð gegn Rússlandi.
Áróður til að skapa þrýsting á að fá fé til vopnaiðnaðarins

Allir eru þó ekki sammála þessum dauðasöng. Þannig segir Roger Richtoff fyrrum meðlimur Svíþjóðardemókrata í varnarmálanefnd sænska þingsins að áróðurinn sé til að dæla fé í hergagnaiðnaðinn:
„Verið er að skapa hræðsluviðbrögð til að fá fjármagn til vopnaiðnaðarins. Í staðinn fyrir að beina augunum að lausn mála, þá er ráðlagt að senda fleiri vopn í staðinn.”
