Forseti Íslands fær greinilega ekki nógu mikla athygli.
Eftir hálfa öld ásakar hún mann – einhvern bónda sem hún var hjá í sveit (veit ekki hvort maðurinn er á lífi til að bera hönd fyrir höfuð sér – fjölskylda mannsins og fjöldi fólks sem veit hvar forsetinn var í sveit veit auðvitað hver hann er) um kynferðislegt ofbeldi.
Ef einhver misnotar þig kynferðislega… talaðu við fullorðna – ég er ekki að segja að það sé alltaf hægt að ætlast til að börn hafi vit á að bregðast við á ákjósanlegastan máta – hafðu samband við yfirvöld, lögreglu/lögmann, en að fara að væla um það hálfri öld síðar…?
Og þú ert æðsti embættismaður þjóðarinnar!??
En að sjálfsögðu logar Facebook í dæmigerðri íslenskri fórnarlambasamúðarorgíu:
“Ó, kæra Halla, þú ert svo hugrökk.”
Það er akkúrat EKKERT hugrakkt við þetta. Þetta er athyglissýki á háu stigi.
