Karlmaður frá Egyptalandi sem kom sem hælisleitandi til Svíþjóðar var dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir að drepa tvö börn sín með eiturgasi í Södertälje. Hann var fluttur í kvennafangelsi eftir að hafa „skipt um kyn“ meðan hann sat í karlafangelsi fyrir morðin. Ný kynleiðréttingarlög í Svíþjóð gera kleift að skrá sig sem annað kyn einfaldlega með því að breyta um kyn í þjóðskrá.
Í apríl 2024 uppgötvaðist eitt umtalaðasta barnamorð nútímans í Svíþjóð. Þegar móðir barnanna kom heim fann hún tvö börn sín – bæði undir tíu ára aldri – dáin á heimilinu. Faðir barnanna, þá 38 ára gamall, var handtekinn skömmu síðar og játaði morðin. Rannsókn leiddi í ljós að börnin höfðu verið kæfð með helíum. Faðirinn, Paulus Abdelshahed frá Egyptalandi, var dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir tvöfalt morð.
Dómsgögn sýna að Abdelshahed var sagður þjást af sjálfsímyndarvanda sem tengist kynama. Samkvæmt skjölunum skilgreinir hann sig sem trans sem meðal annars birtist í því að hann þykist vera kona og klæðist kvenfötum.
Eftir dóminn var Abdelshahed settur í Tidaholmsfangelsið sem er öryggisfangelsi eingöngu ætlað karlkyns föngum. Meðan hann var í fangelsinu sótti hann um að breyta kyni sínu í þjóðskrá og var sú umsókn samþykkt af sænskum skattyfirvöldum. Nafni hans og kennitölu var breytt sem hafði afleiðingar á vistun hans hjá Fangelsismálastofnuninni.
Kynleiðréttingin átti sér stað í ljósi nýrra laga um löglegt kyn sem nýlega tóku gildi í Svíþjóð og gera kleift að breyta kyni sínu í þjóðskrá. Lögin hafa fengið þýðingu innan refsiréttar, þar sem tekið er tillit til löglegs kyns vegna fangelsisvistunar. Í þessu tilfelli leiddi kynbreytingin til þess að ekki var hægt áfram að sitja af sér lífstíðardóminn í fangelsi sem ætlað var körlum. Egypski barnamorðinginn fékk í staðinn að sitja inni með konum, að því er TV4 greinir frá.
Samkvæmt mati yfirvalda er þetta nauðsynlegt svo að viðkomandi geti tekið þátt í sameiginlegri dvöl með öðrum föngum og jafnframt fengið vistun sem samsvarar löglegu kyni.

Laug til að fá hæli í Svíþjóð
Egypski maðurinn kom til Svíþjóðar árið 2009 og sótti um hæli því hann væri kristinn og og í hættu á ofsóknum í heimalandinu. Í umsókninni sagðist hann hafa verið sakaður um nauðgun eftir samband við konu sem hann sagðist að hefði snúið frá íslam til kristni og að bæði fjölskylda hennar og Múslímabræðralagið væru á höttunum eftir honum.
Útlendingastofnun mat það þó svo að aðstæður koptískra kristinna manna í Egyptalandi veittu ekki í sjálfu sér rétt til hælis og taldi einnig að saga mannsins væri ekki trúverðug. Umsókninni var hafnað sem og síðari áfrýjunum fyrir dómstólum.
Þrátt fyrir að hafa verið ítrekað hafnað, þá sótti maðurinn aftur um dvalarleyfi. Eftir að hann giftist konu sem býr í Svíþjóð og eignaðist börn með henni, þá fékk hann fast dvalarleyfi nokkrum árum síðar.
Eftir tvöföldu morðin á börnum sínum viðurkenndi arabinn í yfirheyrslu lögreglu að upplýsingarnar í hælisumsókninni um hótanir og ofsóknir vegna kristinnar trúar væru lygar og að sagan sem hann sagði sænskum yfirvöldum væri einnig uppspuni.
