TV4 greinir frá því að sænska ríkisstjórnin hafi falið lögreglunni að herða eftirlit með útlendingum í Svíþjóð svo hægt sé að finna ólöglega innflytjendur og vísa þeim úr landi. Lögreglan fær víðtækari rannsóknarheimildir gagnvart „skuggasamfélaginu” en talið er að um 100 þúsund dveljist ólöglega í landinu.
Samkvæmt Johan Forsell, ráðherra í innflytjendamálum, eru margir þeirra sem dveljast ólöglega í viðkvæmri stöðu sem oft er misnotuð af öðrum. Margir ólöglegir eru ósvífnir glæpamenn sem nauðga og drepa og vinna í tengslum við glæpahópana sem tröllríða öryggi hins venjulega Svía.
Eitt af vandamálunum í Svíþjóð er þagnarskylda yfirvalda sem hefur hindrað eðlileg störf lögreglunnar. Það eru persónuupplýsingar sem hver stofnun situr inni með en deilir ekki með öðrum. Verið er að laga þennan galla og koma á betra upplýsingaflæði um glæpamenn milli yfirvalda. Að auki er verið að samræma aðgerðir Innflytjendastofnunar og Fangelsismálastofnunar til að gera flutninga og vistun fanga markvissari, því markmiðið er að fleirum verði vísað brott úr landi. Johan Forsell segir við TV4:
„Þetta er umfangsmikil starfsemi sem þarf að virka vel og þá verður öll keðjan að halda.”
Ráðherrann leggur áherslu á að þótt lögreglan fái víðtækari heimildir til að rannsaka grunaða einstaklinga, þá fari slík rannsókn ekki fram að ástæðulausu:
„Ástæðan verður að vera vel grundvölluð, lögreglan má ekki grípa til aðgerða sem byggjast bara á þjóðerni eða húðlit viðkomandi.”
