ESB eyðileggur líf fyrrverandi yfirmanns Nató vegna skoðana um Úkraínustríðið

ESB hefur sett Jacques Baud, fyrrverandi svissneskan ofursta og yfirmann Nató í viðskiptabann. Ástæðan er sú að hann hefur skoðanir á stríðinu í Úkraínu sem eru bannaðar innan Evrópusambandsins.

Baud starfaði fyrir svissnesku leyniþjónustuna á níunda áratugnum og bar ábyrgð á starfsemi Varsjárbandalagsins austan við járntjaldið. Eftir lok kalda stríðsins starfaði hann að verkefnum Sameinuðu þjóðanna í Afríku og síðar á skrifstofu Nató í Brussel, þar sem hann vann að stöðvun útbreiðslu handvopna og jarðsprengja.

Fyrir viku síðan bannfærði ESB ofurstann. Ástæðan er sögð vera sú að hann hefur lýst skoðunum sínum á Úkraínustríðinu í fjölda bóka, YouTube-rása og hlaðvarpa sem eru bannaðar innan sambandsins.

Meðal annars hefur ofurstinn sagt að ef almenningur vissi hversu margir Úkraínumenn hafa fallið í stríðinu, þá myndi fólk ekki halda áfram að styðja landið. Hann segir að stuðningurinn við Úkraínu sé knúinn áfram af „óskhyggju“ um að Rússland verði „knésett.“

Í ákvörðun Evrópuráðsins segir að Jacques Baud starfi sem „málpípa fyrir rússneskan áróður“ og sé þar með:

„ábyrgur fyrir, framkvæmi eða styðji aðgerðir eða stefnu sem má rekja til ríkisstjórnar Rússlands og grefur undan eða ógnar stöðugleika eða öryggi þriðja lands (Úkraínu) með afskiptum og villandi upplýsingum.“

ESB frystir eignir ofurstans án réttarhalda eða dóms

Viðurlögin gegn Jacques Baud eru á borði Kaju Kallas, æðsta fulltrúa ESB í utanríkis- og öryggismálum. Það var hún sem stýrði fundi utanríkis- og öryggismálanefndar Evrópuráðsins fyrir viku síðan. Og það var hún sem undirritaði skipun ESB um að refsa Baud með víðtækum afleiðingum fyrir líf hans. Allar eignir hans, bankareikningar o.s.frv., voru tafarlaust frystar. Hann fær einungis að taka út peninga til að sinna grunnþörfum eins og húsaleigu og mat eftir að ESB hefur veitt samþykki.

Fyrrverandi ofursti Sviss er eitt af nýjustu nöfnunum á vaxandi lista yfir fólk sem ESB refsar handahófskennt án undanfarandi réttarhalda eða dómsúrskurðar. Flestir þeirra sem fyrir voru á listanum eru Rússar, eða aðrir búsettir fyrir utan ESB. Þess vegna verða þeir yfirleitt ekki fyrir jafnmiklum áhrifum af refsiaðgerðunum og Jacques Baud.

Eftir að Baud hóf störf í höfuðstöðvum Nató, þá hefur hann kosið að vera áfram í Brussel. Þess vegna er búist við að refsiaðgerðirnar verði sérstaklega þungar fyrir hann.

Auk Jacques Baud var ellefu nýjum nöfnum bætt við refsiaðgerðalista ESB. Meðal þeirra er úkraínski blaðamaðurinn Diana Panchenko, sem er sökuð um að dreifa „and-úkraínskum, rússneskum og and-Nató frásögnum.“

Fara efst á síðu