Samkvæmt stórri skoðanakönnun eru 67% Belga á móti því að frystir peningar í eigu rússneska ríkisins verði notaðir til stuðnings Úkraínu. Belgíski forsætisráðherrann Bart De Wever var því að vinna fyrir þjóð sína, þegar hann gekk gegn ESB sem ætlaði að stela eigum Rússlands og senda til Úkraínu. Að helstu fjölmiðlar virða ekki staðreyndir og eru málpípur framkvæmdastjórnarinnar kom skýrt í ljós, þegar þeir jusu ókvæðisorðum yfir forsætisráðherrann í bræði og uppnefndu öllum illum nöfnum eins og Rússadyndil og helsta talsmanns Pútíns í Evrópu.
Eftir ósigur ESB sem tók 90 milljarða evru lán í staðinn á ábyrgð skattgreiðenda fyrir utan Ungverjaland, Tékkland og Slóvakíu sem neituðu að vera með í láninu, þá fékk fjölmiðlafólk að heyra það. Bart De Wever sagði á blaðamannafundi og beindi orðum sínum að Politico samkvæmt TT:
„Aha, þið birtuð fullt af fínum greinum með fínum fyrirsögnum og fullyrtuð að ég væri mikilvægasti fulltrúi Rússlands í ESB. Ég skal muna það.“
Vikum saman hefur De Wever andmælt áætlun framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um að stela eignum rússneskra ríkisins og nota sem veð fyrir láni til Úkraínu, sem er að sjálfsögðu algjörlega í trássi við alþjóðalög. Hann sagði Belgíu ekki geta borið lagalega, fjárhagslega áhættu þjófnaðarins en peningarnir eru í vörslu belgísku fjármálastofnunarinnar Euroclear. Eftir ESB-fundinn sagði hann:
„Löndum í grennd við Rússland fannst það tilfinningalega fullnægjandi að taka frystu eignirnar. En stjórnmál eru meira en tilfinningaþrungin vinna.“
Andspyrnan hélt velli. Áætlunin féll og ESB kaus sameiginlega lántöku í staðinn. De Wever grínaðist með að hann yrði líklega borgarstjóri St. Pétursborgar í Rússlandi:
„Núna ætla ég að fara í sumarbústaðinn minn í Sankti Pétursborg, þar sem nágranni minn er Gérard Depardieu og hinum megin við götuna býr Assad. Ég held að ég geti orðið borgarstjóri þar.“
Lánaæði ESB er sjúkdómur
Ungverjaland, Tékkland og Slóvakía eru ekki með í 90 milljarða láni ESB ríkjanna. Urðu löndin að gefa frá sér neitunarréttinn til að geta staðið utan við lánið. ESB vildi heldur ekki að þau gætu beitt neitunarréttinum til að stöðva lántökuna. Viktor Orbán segir peningana glataða, Úkraína muni aldrei geta borgað til baka „lánið.“
Gustaf Kasselstrand formaður flokksins Valkostur fyrir Svíþjóð skrifar á samfélagsmiðlum:
„Þetta eru glataðir peningar. Sem betur fór tókst ESB ríkjunum ekki að sameinast um að stela rússnesku eigunum. En í staðinn kemur annað brjálæði: stjarnfræðilega hátt lán til Úkraínu…..Lánaæðið meðal landa í Evrópu er í síkum mæli að það ætti að klassa það sem sjúkdóm.“
