Grænu umskiptin svo kölluðu hafa „eyðilagt innviði í löndum okkar og rekur okkur í átt að fátækt“ segir Micael Hamberg, hagfræðingur, í Swebbtv. Hann bendir á að núna hafi stjórnmálamenn neyðst til að bakka frá „græna brjálæðinu.“ Veruleikinn hefur hefur að lokum náð í græna skottið.
Rætt er meðal annars um tilkynningu framkvæmdastjórnar ESB um að hún muni aflétta sölubanninu á nýjum bensínbílum. Swebbtv hefur áður spáð því að ESB myndi neyðast til að bakka.
Ef ESB hefði ekki bakkað hefði evrópski bílaiðnaðurinn þurrkast út. Bo Hansson einn þátttakenda í umræðunum sagði:
„Vissulega hefði ríkisstjórnin í Þýskalandi þurrkast út í leiðinni. Afleiðingarnar af því að þetta bitni á bílaiðnaðinum hafa raunveruleg áhrif á stjórnmálin. En ákvörðunin mun duga skammt. Tjónið er þegar orðið svo mikið í þýska bílaiðnaðinum. Það verða fleiri lokanir fyrirtækja, verksmiðjur loka, fólk verður atvinnulaust og framleiðslan minnkar. Undirverktakar munu einnig verða fyrir áhrifum, bæði í Þýskalandi og Svíþjóð.
Þetta mun ekki duga. ESB og framkvæmdastjórn Evrópusambandsins verða að bakka lengra. Lengra og lengra og lengra.”
Micael Hamberg segir:
„Þetta er því stefnubreyting undir gálganum. Raunveruleikinn er að ná í skottið á græna brjálæðinu: Það eru Græningjarnir og Umhverfisflokkurinn sem hafa eyðilagt innviði í löndum okkar og eru að keyra okkur í átt að fátækt.”
