Fyrrverandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Mike Pompeo, telur að Nató eigi að búa sig undir hernaðarárásir á hernaðarmannvirki Rússlands ef friðarsamningar nást ekki. Tillagan þýðir að Vesturveldin komi af stað stríði á rússneskri grundu – sem örugglega ýtir heiminum beint í þriðju heimsstyrjöldina.
Mike Pompeo, fyrrverandi forstjóri CIA og utanríkisráðherra Bandaríkjanna á fyrsta kjörtímabili Donalds Trumps (2017-2021), segir í viðtali við danska Børsen segir að eyða verði hernaðargetu Rússlands með beinum árásum á lykilskotmörk:
„Við verðum að eyðileggja öll hernaðarmannvirki Rússlands – verksmiðjur þeirra, hafnir. Við verðum að eyðileggja stríðsvél þeirra svo hún geti ekki lengur drepið okkur.“
Fari Nató og Úkraína með her inn á rússneskt landsvæði má búast við þriðju heimsstyrjöldinni og miklu kjarnorkustríði. Halda mætti að fyrrverandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna sem í alvöru ræðir slíka hugmynd sé endanlega genginn af göflunum. Þarna er komin í ljós útskýringin á því, hvers vegna Pompeo er ekki lengur með í teymi Trumps Bandaríkjaforseta. Pompeo er sjálfur hluti þess djúpríkis sem hreiðrað hefur um sig og Bandaríkjamenn undir forystu Donald Trumps reyna að uppræta.
Gerir lítið úr ógn kjarnorkuvopna
Pompeo vísar áhyggjum af því alfarið á bug, að árás Nató á Rússland leiði til notkunar kjarnorkuvopna. Hann segir að Vesturlönd eigi að sýna minni hræðslu af sér og einbeita sér í staðinn að hernaðinum. Hann segir:
„Því meira sem við óttumst kjarnorkuvopn, því meira vald gefum við Pútín, Við erum komin yfir þann punkt þar sem við þurfum að vera hrædd við að reita hann til reiði.“
Yfirlýsingarnar þýða að að hann sér litla sem enga hættu á allsherjarstríði stórveldanna. Pompeo telur að evrópsk stjórnvöld, sérstaklega í Þýskalandi haldi aftur af sér af efnahagsástæðum, hvað varðar útflutningsháð iðnfyrirtæki sem höfðu áður viðskiptatengsl við Rússland. Þeir einu sem græða á stríðsæsingi Pompeos eru hergagnaframleiðendur. Sú gleði verður samt skammvinn ef fullt kjarnorkustríð brýst út.
Ríki í Evrópu breytast í vígvöll ef farið er eftir geðveikistillögum manna eins og Pompeo og sýnir hversu hættulegir slíkir menn eru þjóðaröryggi almennings og efnahagslegum stöðugleika. Það er óskadraumur þeirra Pompeo, van der Leyen, Starmers, Macron, Merz, Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur og Kristrúnu Frostadóttur að almenningi í löndum þeirra verði fórnað fyrir stundargróða hergagnaiðnaðarins og athygli þeirra sjálfra áður en allt fuðrar upp í geislavirkt ský.
