Jólaþáttur Ísafoldar með Páli Vilhjálmssyni blaðamanni og kennara. Þau Íris Erlingsdóttir fjölmiðlafræðingur, og Gústaf Skúlason ritstjóri Þjóðólfs ræða við Pál Vilhjálmsson um árs afmæli ríkisstjórnarinnar og brösuglega ferð hennar með ofursköttum á landsmenn þvert á gefin kosningaloforð ásamt hrapallegri undirgefni við miðstjórn ESB í Brussel.
Keyptar skoðanakannanir Viðreisnar og Samfylkingarinnar um afstöðu þjóðarinnar til ESB eru ekki birtar og allir skilja hvers vegna. Þrátt fyrir andstöðu þjóðarinnar, þá gefur valkyrjustjórnin frá sér hagsmuni landsins bæði til stjórnar ESB á utanríkisstefnu Íslands og núna síðast þriðjung aflaverðmætis í makrílsamningum sem skaðar velferð Íslands.
Þjóðin ekki á leiðinni í Evrópusambandið
„Þjóðin er ekki á leiðinni í Evrópusambandið” segir Páll og bendir á sundrung valkyrja heima og í Brussel. ESB eru brunarústir sem sífellt stækka til dæmis með 90 milljarða evru lántöku til að reka úkraínska ríkið. Þeir peningar fást aldrei borgaðir til baka heldur verða það skattgreiðendur ESB ríkjanna að undanskildu Ungverjalandi, Tékklandi og Slóvakíu sem vildu ekki vera með.
En íslenska ríkisstjórnin heldur áfram að aðlaga stjórnkerfið að reglum ESB þannig að áætluð þjóðaratkvæðagreiðsla verður sýndarmennskan ein og jafnvel bein svik ef annað er spurt en Viltu ganga með í ESB, já eða nei.
RÚV er aðgerðarmiðstöð fyrir vinstri menn
Fjölmiðlaáætlun Loga Más Einarssonar menningar- og nýsköpunarráðherra er rýnd og Páll Vilhjálmsson segir að RÚV sé í varðstöðu fyrir ríkisstjórnina enda um sama hóp einstaklinga að ræða. Með tillögum Loga Einarssonar verður staða RÚV sem yfirfjölmiðils fest á Íslandi, þvert á breytt neytendaform, þar sem margir hvorki horfi né hlusti á RÚV og snúi sér að valkostamiðlum, þar sem fólk ákveður sjálft hvenær það horfir og á hvað það horfir.
Þá var hið mikla og vaxandi Gyðingahatur bæði á Íslandi og í heiminum til umræðu og hlutverk RÚV í þróuninni sem miðstöð Gyðingahaturs á Íslandi. Páll sagði að RÚV væri í rauninni aðgerðarmiðstöð fyrir vinstri menn til dæmis hefði lítið sem ekkert verið birt af fréttum um friðarviðleitni Bandaríkjaforseta í stríðinu á Gaza.
Íris ræddi útspil forseta Íslands sem gerir kunnugt, að hún hafi orðið fyrir kynferðislegu afbroti sem barn. Barnaníð er óhugnanlegt afbrot sem skaðað getur fórnarlambið alla ævi. Halla Tómasdóttir er hins vegar kjörinn þjóðarleiðtogi Íslands, þannig að henni hefur tekist að komast frá þessu og má setja spurningarmerki við það, hvers vegna forsetinn velur núna fyrir jólin að skapa umræðu um einkamál sín.
