Forseti Finnlands viðurkennir skyndilega: Engin styrjaldarhætta af Rússum

Eftir ár af háværum viðvörunum um yfirvofandi árásir Rússa á Evrópu er núna komið allt annað hljóð í strokkinn – alla vega hjá Finnum. Alexander Stubb, forseti Finnlands, viðurkennir opinberlega að Rússland skorti bæði vilja og áhuga til árása. Samtímis halda ESB og hinir viljugu áfram stríðsæsingi sínum vegna „stríðshættu af Rússlandi til að koma í veg fyrir friðartilraunir Bandaríkjamanna.

Alexander Stubb, forseti Finnlands, staðfestir það sem Tulsi Gabbard, yfirmaður bandarísku leyniþjónustunnar, og nokkrir aðrir hafa þegar bent á: Rússland er ekkert að fara að ráðast á Evrópu, þá skortir getu til að heyja stríð gegn Nató. Samt er „stríðsógnin“ notuð sem rök til að senda milljarða í aðstoð til Úkraínu, hervæða alla álfuna og koma í veg fyrir friðarviðræður sem gætu bundið enda á stríðið. Stubb sagði í viðtali við Fox News:.

„Við vinnum náið með bandarísku leyniþjónustunni og vitum nokkuð vel hvað er í gangi. Og ég er sammála mati Tulsi Gabbard um að staðfesta að Nató sé svo sterkt að Rússland hefur engan áhuga á árásum. Fyrir Rússland væri það sjálfsmorð. Ef þeir ráðast á Nató-land myndi það leiða beint til allsherjar áreksturs. Ég sé það ekki sem raunverulega ógn.“

Yfirlýsing Finnlandsforseta gengur þvert á þá frásögn sem vestrænir fjölmiðlar dæla út liðlangan daginn. Þetta á við um Reuters, sem fullyrti um helgina að Rússland hygðist ráðast inn í hluta Evrópu. Gabbard svaraði því til að þetta væru „lygar og áróður“ og sakaði vestræna aðila um að vilja hindra viðleitni Donald Trumps til að koma á friði í Úkraínu.

Rússagrýlan óspart notuð

Yfirlýsing Stubbs staðfestir að stjórnmálamennirnir sem hæst tala um yfirvofandi ógn frá Rússlandi vita að hún er ekki til staðar. Samt nota þeir Rússagrýluna til að réttlæta nýja skatta á eigin landsmenn til að senda Úkraínu peninga í hverjum mánuði og hergagnaframleiðendur fara hlæjandi í bankann. Velferð er fórnað fyrir tilgangslaust stríð sem væri lokið ef ESB og stríðshaukarnir hefðu ekki komið í veg fyrir það.

Fyrrverandi hershöfðingi Nató, aðmíráll Rob Bauer, hefur opinberlega krafist þess að ESB afnemi 40 tíma vinnuviku til að byggja vopnaverksmiðjur allan sólarhringinn. Að auki eiga ákvarðanir í hernaði að ganga fljótt fyrir sig fram hjá öllu lýðræði. Jens Stoltenberg, fyrrverandi aðalritari Nató, fullyrti að lýðræðisríki verði að sætta sig við niðurskurð í velferðarkerfum sínum til að fjármagna stríðið í Úkraínu. Skyndileg breyting Stubbs er jákvætt skref og væntanlega fylgja fleiri þjóðarleiðtogar í kjölfarið.

Fara efst á síðu