Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur skipað Jeff Landry, ríkisstjóra Louisiana, sem sérstakan sendiboða á Grænlandi. Landry lofar að aðstoða Trump þegar í stað og tryggja að hin mikla og auðlindaríka danska eyja verði hluti af Bandaríkjunum.
Jeff Landry þakkar fyrir ráðninguna og skrifar á X (sjá að neðan) að það sé heiður að taka að sér starfið samhliða starfinu sem ríkisstjóri Louisana til að „gera Grænland að hluta af Bandaríkjunum.“
Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, og Jens-Frederik Nielsen, forsætisráðherra Grænlands, brugðust harkalega við ráðningunni. Í sameiginlegri yfirlýsingu leggja þau áherslu á að ekki sé hægt að innlima landsvæði annarra ríkja. Þau skrifa:
„Grænland tilheyrir Grænlendingum og Bandaríkin eiga ekki að taka yfir Grænland. Við væntum þess að borin sé virðing fyrir landhelgi okkar.“
Thank you @realDonaldTrump! It’s an honor to serve you in this volunteer position to make Greenland a part of the U.S. This in no way affects my position as Governor of Louisiana!
— Governor Jeff Landry (@LAGovJeffLandry) December 22, 2025
Lars Løkke Rasmussen, utanríkisráðherra Danmerkur, kallar skipun sendiboðans algjörlega óásættanlega og hefur kallað Ken Howery, sendiherra Bandaríkjanna í Danmörku, inn á teppið til viðræðna. Búist er við að Howery sem nýlega heimsótti Nuuk muni útskýra stöðuna.
Jens-Frederik Nielsen, forsætisráðherra Grænlands, reynir að gera lítið úr málinu og skrifar á Facebook að skipunin „breyti engu fyrir okkur hér heima“ og að Grænlendingar séu ánægðir með að halda áfram samstarfi við Bandaríkin.
Maria Malmer Stenergard, utanríkisráðherra Svíþjóðar, leggur áherslu á að Danmörk og Grænland ráði sjálf málum sínum. Hún skrifar:
„Svíþjóð styður nágrannaland okkar heilshugar í þessum málum og mun alltaf standa með þjóðarréttinum.“
Jeff Landry er einlægur stuðningsmaður Trumps. Hann er fyrrverandi þingmaður og lögreglumaður, þekktur fyrir snör handtök gegn glæpamönnum og andstöðu gegn fóstureyðingum. Hann hefur meðal annars undirritað lög sem skylda opinbera skóla til að hengju upp boðorðin tíu úr Biblíunni.
