Saint-Cyriaque kirkjan eyðilögð í eldi
Enn ein kristin kirkja tekin fyrir í Frakklandi. Frá árinu 2020 hafa átt sér stað nokkur hundruð íkveikjutilvik gegn kirkjum, varlega áætlað 200–400+, auk annarra eldsvoða af tilviljun, að ótöldum fjölmörgum skemmdarverkum og vanhelgunartilvikum.
Í fyrradag var það Saint-Cyriaque kirkjan í Montenach, nálægt frönsku landamærunum, sem eyðilagðist í eldi. Kirkjan lifði af tvær heimsstyrjaldir, en ekki íslamska innrás Evrópu. Logarnir gleyptu þak og klukkuturn á örfáum mínútum, þrátt fyrir viðbrögð um 60 slökkviliðsmanna.

The Gateway Pundit greindi frá:
„Myndbönd sem voru send út í beinni á samfélagsmiðlum sýndu þykkan reyk og nokkrum mínútum síðar loga sem náðu nokkrum metrum á hæð, þegar eldurinn lagði Saint-Cyriaque kirkjuna í rúst. Þakið og klukkuturninn virtust hverfa í hinum mikla eldi á örfáum mínútum.
Slökkviliðsmenn komu á vettvang með stigabíl, en logarnir höfðu þá þegar valdið miklum skemmdum á timburbyggingu kirkjunnar. Einn skrifaði á samfélagsmiðla:
„Þetta er hörmulegt, börnin okkar áttu að gifta sig þar á laugardag.“
Að sögn Fabien Didier, yfirlögreglustjóra og yfirmanns slökkviliðsins í Moselle, var neyðarþjónustu gert viðvart kl. 13:19 um „gróðureld nálægt kirkjunni“. Við komu á vettvang sáu þeir reyk stíga upp úr klukkuturninum. Eldurinn, sem magnaðist af vindi sem náði hviðum upp á 50 km/klst síðdegis á fimmtudag breiddist hratt út um allt þak kirkjunnar.
Slökkviliðsmenn þurftu þá að glíma við eldinn á þremur vígstöðvum: slökkva aðaleldinn, flytja listaverk úr kirkjunni og ná stjórn á gróðureldi. Um 60 slökkviliðsmenn voru á vettvangi með um 40 neyðarbíla.
