Glæpahagkerfið í Svíþjóð er orðið risavaxið með ársveltu upp á 352 milljarða sænskra króna á ári. Þetta er „krabbamein í líkama samfélagsins“ útskýrir hagfræðingurinn Micael Hamberg í Swebbtv.
Í nýjum þætti um efnahagsmál á Swebbtv er meðal annars rætt um hagkerfi glæpaklíkanna í Svíþjóð sem núna nemur gríðarlegum fjárhæðum eða 352 milljörðum sænskra króna. Það samsvarar tæplega fimm þúsund milljörðum íslenskra króna. Hagfræðingurinn Micael Hamberg segir í Swebbtv:
„Með höndina á hjartanu. Maður verður í raun ansi dapur og leiður þegar maður heyrir þetta, hvernig komið er fyrir Svíþjóð. Maður hugsar um það. Við þrír erum allir komnir til ára. Við héldum öll að við byggjum í Ærslabænum. Og það var það líka en en núna erum við komin eins langt frá Ærslabænum og hægt er að komast. Svíþjóð er að verða rotið.“

Krabbamein í samfélagslíkamanum
Að sögn Hambergs er glæpahagkerfið „krabbamein í líkama samfélagsins.“ Hann heldur áfram:
„Ef fólk byrjar að gruna að allir séu spilltir, þá mun traustið á samfélaginu minnka. Óformlegt traust milli fólks er mjög mikilvægur þáttur í því hversu skilvirkt samfélagið er… Þegar svona mikið er um glæpi eins og þetta glatast traustið sem kostar mikla peninga.“
