Stofnfundur Æruverndar kl. 14.00 sunnudag 25. janúar í safnaðarheimili Kópavogskirkju – Allir hjartanlega velkomnir

Prestarnir og félagarnir séra Halldór Gunnarsson í Holti og séra Valgeir Ástráðsson voru í viðtali hjá Vísi og ræddu stofnun nýs félags um æru manna, Æruvernd og verður stofnfundur félagsins kl 14 í safnaðarheimili Kópavogskirkju sunnudaginn 25. janúar kl. 14.00.

Félagið á að standa vörð um æruvernd lifenda og látinna sem og kristna trú og kristin gildi. Sérstök áhersla er á að endurreisa æru séra Friðriks Friðrikssonar en Dagur B. Eggertsson lét fjarlægja fallega styttu af honum við hlið Menntaskólans í Reykjavík. Jón Magnússon hæstaréttarlögmaður er einn af stofnendum Æruverndar og hefur hann verið duglegur að tala máli Friðriks fyrir daufum eyrum borgaryfirvalda en betri undirtektum annarra.

Séra Halldór hefur séð leynilega skýrslu og upptöku af viðtali við þann eina einstakling sem er lifandi sem var stoltur af því að hafa kynnst séra Friðriki Friðrikssyni. Sögusögnum var dreift þar sem sagt var að séra Friðrik Friðriksson hefði haft óhreint og kynferðislegt í huga, þegar hann faðmaði pilta sem lærðu um Jesús Krist og Guð skapara himins og jarðar hjá honum. Aldrei hafa komið fram nein sönnunargögn í málinu og mörgum sem þekktu til séra Friðriks þekkja sig alls ekki í þeim gróusögum sem fengu borgaryfirvöld til að fjarlægja styttuna af honum í Lækjargötu.

Séra Halldór Gunnarsson og séra Valgeir Ástráðsson kynna stofnun Æruverndar hjá Vísi (skjáskot Vísir).

Markmið nýrrar stjórnar Æruverndar verður meðal annars að hefja samstarf við KFUM og Vals til að fá fram hið rétta í málinu varðandi séra Friðrik Friðriksson. Séra Halldór lýsir því þegar hann var 10 ára gamall og séra Friðrik kominn á áttræðisaldur og hálf blindur að séra Friðrik hafi kysst hann í kross á andlitið og blessað hann í kapellunni og sagði séra Halldór að hann hlyti eftir að hann varð fullorðinn, að muna eftir því ef eitthvað hefði verið óeðlilegt við blessun séra Friðriks.

Það er von Ærunefndar að ofangreindir aðilar verði með þeim í þeirri vegferð að vinna fram staðreyndir málsins svo hægt sé að ljúka því í sátt og samlyndi allra. Ef fyrri skýrsluhöfundar sem vörpuðu fram ásökunum látinna manna vilja ekki koma til tals nefndi séra Halldór, að þá væri ekki útilokað að farin yrði lagaleg leið til að ná fram niðurstöðu.

Miklar undirtektir eru fyrir stofnun félagsins og uppreisn æru séra Friðriks Friðrikssonar sem vann mikið æskulýðsstarf á kristnum grundvelli með þjóðkirkjunni. Sagði séra Halldór að slíkan mann vantaði tilfinnanlega í þjóðkirkju nútímans.

Fara efst á síðu