Íris Erlingsdóttir segir frá ofbeldi vinstri kvenna í Minnesóta, þar sem hún býr í Bandaríkjunum. Þeir sem hafa fylgst með fréttum frá Minnesota undanfarna viku hafa ekki aðeins séð vinstrisinnaða atvinnumenn í óeirðum, ofbeldi og djöfulgangi ráðast á lögreglumenn útlendingaeftirlitsins – það sem ekki hefur farið framhjá neinum er að vinstrisinnaðar, hvítar konur, sem eru stór hluti hryðjuverkahópanna á götum Minneapolis, virðast gjörsamlega hafa gengið af vitinu.
Í þættinum segir Íris frá því að lögreglumaður útlendingaeftirlitsins ICE skaut Rene Good í sjálfsvörn til að koma í veg fyrir að hún réðist á hann með 2 tonna vopni – jeppanum sem hún ók – já, 2 tonna jeppi er banvænt vopn. Íris segir:
„Við höfum séð hvert myndbandið á fætur öðru af konum sem haga sér á almannafæri eins og smábörn, konur í brjálæðislegum móðursýkisköstum, öskrandi og grenjandi. En þær eru ekki smábörn. Þetta eru brjálæðingar. Greinilega halda þær að þeim muni ganga betur en Renee Good.”
En af hverju halda svona margar konur að þær geti hagað sér svona?
Josh Slocum, sem var í viðtali hjá okkur á Ísafold fyrir nokkrum vikum, bendir á vestræn þjóðfélög hafi í yfir hálfa öld verið undir járnhæl meginstraums femínisma. Við erum ekki lengur að tala um “sömu laun fyrir sömu vinnu” – nei, við erum, eins og hvergi er augljósara en á Íslandi að tala um fádæma forréttindafrekju og tilætlunarsemi. Öllum lögmætum kröfum kvenréttindabaráttunnar var fullnægt fyrir áratugum. Íris segir að „Þú myndir ekki vita það ef þú ert í íslenska Píkuveldinu.”
Allir Bandaríkjamenn gera sér grein fyrir hræðilegum afleiðingum af opinni landamæra stefnu Bidens og Demókrata og meirihluti bandarískra kjósenda kaus Trump til að taka á þeim afleiðingum. Háskólaneminn Laken Riley var myrt af boðflennum frá Venesúela árið 2024. Tvær boðflennur, einnig frá Venezuela, myrtu tólf ára gamla stúlku, Jocelyn Nungaray sama ár. En kerlingaskössunum á götum Minneapolis er nákvæmlega sama um bandarískar stúlkur – börn – og konur sem er misþyrmt, nauðgað eða myrtar af ólöglegum boðflennum.
Hvers vegna halda svo margar vinstrisinnaðar konur að ungir erlendir karlmenn sem hafa komið ólöglega til Bandaríkjanna séu saklaus fórnarlömb sem þurfi á mæðravernd þeirra að halda? Hvers vegna telja þær að bandarískar stúlkur og ungar konur eigi ekki rétt á vernd gegn þessum mönnum?
Íris rekur sálræn vandamál þessara ofstopakvenna og telur að femínisminn sé fyrir löngu orðinn að eigin mótsögn við það sem upphaflega var farið af stað með.
Smelltu á spilarann til að horfa á þáttinn:
