„Saga frelsisins er saga þeirra sem þora“ – Ungir sjálfstæðismenn minnast Davíðs Oddssonar

Samband ungra sjálfstæðismanna minnist Davíðs Oddssonar með verðskuldaðri virðingu og stjórnmálalegum hlýhug í grein á Facebook. Segir þar að andlát Davíðs Oddssonar marki endalok eins áhrifamesta stjórnmálaferils í sögu íslenska lýðveldisins. Davíð Oddsson mótaði íslensk stjórnmál um áratuga skeið og var um leið eitt helsta tákn sjálfstæðisstefnunnar á Íslandi.

Davíð Oddsson var um langt árabil í fremstu röð íslenskra stjórnmála. Hann var borgarstjóri í Reykjavík, síðar forsætisráðherra Íslands og einn áhrifamesti leiðtogi sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur átt. Á ferli sínum lagði hann ríka áherslu á frjálst markaðshagkerfi, alþjóðlegt samstarf og aukið vægi einstaklingsframtaks.

Samband ungra sjálfstæðismanna vottar fjölskyldu Davíðs Oddssonar og þjóðinni allri samúð. Í skrifum SUS er Davíð lýst sem „merkilegasta stjórnmálaleiðtoga lýðveldissögunnar“ og einni helstu frelsishetju sem Ísland hafi alið af sér.

Áratugalöng forysta þjóðarinnar

Í grein SUS er bent á að fáir stjórnmálamenn hafi haft jafn mótandi áhrif á þróun íslensks samfélags. Þar er meðal annars vísað til þess að Davíð hafi verið farsæll borgarstjóri Reykjavíkur og þaulsetnasti forsætisráðherra landsins:

„Það Ísland sem við þekkjum í dag, byggt á frjálsu markaðshagkerfi, alþjóðlegri samvinnu og trú á einstaklingsframtakið, varð til fyrir tilstilli markvissrar forystu. Fáir hafa rökstutt þessi gildi af jafnmikilli sannfæringu og Davíð Oddsson og arfleifð hans birtist í því að Ísland er í dag meðal frjálsustu þjóða heims.“

Fyrirmynd ungra sjálfstæðismanna

Ungir sjálfstæðismenn segja Davíð hafa verið mikilvæga fyrirmynd fyrir kynslóðir innan hreyfingarinnar. „Við stöndum á herðum Davíðs Oddssonar“ segir í yfirlýsingunni, þar sem fram kemur að barátta hans fyrir frelsi og sjálfstæði hafi haft varanleg áhrif á íslensk stjórnmál.

Vitnað er einnig til orða hans af landsfundi Sjálfstæðisflokksins árið 2009 þar sem hann lagði áherslu á staðfestu í stjórnmálabaráttu:

„Það má aldrei bogna þó að á móti blási. Það má aldrei hika þótt herði að og það má ekki einu sinni líta undan þótt sýnin sé ekki frýnileg. Og það má aldrei svíkja sjálfan sig og það sem maður í hjarta sínu trúir á, fyrir stundarávinning.“

Samkvæmt yfirlýsingu SUS var Davíð ekki aðeins stjórnmálamaður heldur leiðtogi sem hvatti aðra til að standa með sannfæringu sinni. „Saga frelsisins er saga þeirra sem þora“ segja ungir sjálfstæðismenn og vitna til leiðtogahæfileika Davíð Oddssonar.