Donald Trump, Bandaríkjaforseti, ávarpaði þjóðina á miðvikudagskvöld með uppfærslu um stríðið við Íran, þar sem hann tilkynnti að Bandaríkin væru nálægt því að ljúka öllum markmiðum aðgerðarinnar Operation Epic Fury og virtist gefa til kynna að stríðið væri að nálgast endalok, óháð því hvort Íran opni Hormuz-sundið á ný. Þjóðólfur birtir ræðu forsetans í lausri þýðingu og að neðan er hún á myndbandi:
„Í raun gerði ég það sem enginn annar forseti var tilbúinn að gera. Þeir gerðu mistök, og ég er að leiðrétta þau. Fyrsta val mitt var alltaf samningaleiðin. Samt hélt stjórnin áfram óþreytandi leit sinni að kjarnavopnum og hafnaði hverri einustu tilraun til samkomulags. Af þessum sökum skipaði ég í júní árás á lykilkjarnorkumannvirki Írans, í aðgerðinni Midnight Hammer. Enginn hefur nokkru sinni séð neitt þessu líkt. Þessar fallegu B-2 sprengjuvélar stóðu sig stórkostlega. Við gjöreyddum þessum kjarnorkustöðvum. Stjórnin reyndi síðan að endurbyggja kjarnorkuáætlun sína á allt öðrum stað, sem sýnir skýrt að hún hafði engan ásetning um að hætta leit sinni að kjarnavopnum.
Þeir voru einnig að byggja hratt upp gríðarlegan birgðastokk hefðbundinna skotflauga, og hefðu brátt haft eldflaugar sem gætu náð til bandaríska meginlandsins, Evrópu og nánast allra staða á jörðinni. Stefna Írans var svo augljós. Þeir vildu framleiða eins margar eldflaugar og mögulegt var, og gerðu það, með eins langa drægni og mögulegt var og þeir áttu vopn sem enginn trúði að þeir hefðu. Við komumst nýlega að því, við eyddum þeim, við eyddum þeim öllum. Enginn þorði að stöðva þá í kapphlaupi þeirra að kjarnorkusprengjum, kjarnavopnum sen enginn hefur nokkru sinni séð áður. Þeir voru alveg við þröskuldinn.
Í mörg ár hafa allir sagt að Íran geti ekki haft kjarnavopn, en á endanum eru það bara orð ef maður er ekki tilbúinn að grípa til aðgerða þegar að því kemur. Eins og ég sagði þegar ég kynnti aðgerðina Epic Fury, eru markmið okkar mjög einföld og skýr. Við erum kerfisbundið að afnema getu stjórnvalda til að ógna Bandaríkjunum eða varpa valdi út fyrir landamæri sín. Það þýðir að útrýma flota Írans, sem er nú algjörlega eyðilagður, veikja flugher þeirra og eldflaugaáætlun á þann hátt sem aldrei hefur sést áður og tortíma varnariðnaði þeirra. Við höfum gert allt þetta. Floti þeirra er horfinn, flugher þeirra er horfinn, eldflaugar þeirra eru nánast búnar eða ónýtar Samtals munu þessar aðgerðir lama her Írans, brjóta niður getu þeirra til að styðja hryðjuverkaaðila og svipta þá getu til að smíða kjarnorkusprengju.
Herafli okkar hefur verið einstakur. Það hefur aldrei sést neitt þessu líkt hernaðarlega. Allir tala um það, og í kvöld er ég ánægður með að segja að þessi kjarnamarkmið eru að nálgast lok. Þegar við fögnum þessum árangri hugsum við sérstaklega til 13 bandarískra hermanna sem létu lífið í þessari baráttu til að koma í veg fyrir að börn okkar þurfi nokkurn tíma að horfast í augu við kjarnorkuvætt Íran. Tvisvar í þessum mánuði hef ég ferðast til Dover-flugstöðvarinnar, og það hefur verið alveg sérstakt. Ég vildi vera með þessum hetjum þegar þær snúa aftur til bandarískrar moldar, og ég var með þeim og fjölskyldum þeirra, foreldrum, eiginkonum og eiginmönnum. Við heiðrum þau, og nú munum við heiðra þau með því að ljúka verkefninu sem þau gáfu líf sitt fyrir. Og hver einasti aðstandandi sagði: „Vinsamlegast, herra, ljúkið verkinu,“ hver einasti. Og við ætlum að ljúka verkinu, og við ætlum að gera það mjög skjótt. Við erum mjög nálægt því.
Ég vil þakka bandamönnum okkar í Miðausturlöndum, Ísrael, Sádi-Arabíu, Katar, Sameinuðu arabísku furstadæmunum, Kúveit og Barein. Þau hafa verið frábær, og við munum ekki láta þau verða fyrir tjóni eða mistakast á nokkurn hátt. Margir Bandaríkjamenn hafa haft áhyggjur af nýlegri hækkun bensínverðs hér heima. Þessi skammtímahækkun er alfarið afleiðing þess að íranska stjórnin hóf geðveikar hryðjuverkaárásir á olíuflutningaskip í nágrannaríkjum sem hafa ekkert með átökin að gera. Þetta er enn eitt sönnunargagnið um að Íran má aldrei treysta fyrir kjarnavopnum. Þeir myndu nota þau, og þeir myndu nota þau hratt. Það myndi leiða til áratuga kúgunar, efnahagslegra erfiðleika og óstöðugleika, verri en við getum ímyndað okkur. Bandaríkin hafa aldrei verið betur undirbúin efnahagslega til að takast á við þessa ógn. Þið vitið það öll. Við byggðum upp sterkasta hagkerfi sögunnar. Við erum í því núna, sterkasta í sögunni. Á einu ári höfum við tekið dauðvona og lamað land — mér er illa við að segja það, en við vorum þannig eftir síðustu stjórn — og gert það að heitasta landi í heimi, án verðbólgu, með metfjárfestingar sem streyma inn í Bandaríkin, yfir 18 billjónir dala, og hæsta hlutabréfamarkað nokkru sinni, með 53 ný met á einu ári.
Allt þetta setti okkur í stöðu til að losna við mein sem hefur kraumað lengi. Það kallast kjarnorku-Íran, og þeir vissu ekki hvað var að koma. Þeir ímynduðu sér það aldrei. Munið að vegna „boraðu elskan boraðu“ stefnu okkar hefur Bandaríkin nóg af gasi. Við höfum svo mikið gas. Undir minni forystu erum við stærsti framleiðandi olíu og gass á jörðinni, án þess að nefna milljónir tunna sem við fáum frá Venesúela. Vegna stefnu Trump-stjórnarinnar framleiðum við meira af olíu og gasi en Sádi-Arabía og Rússland samanlagt. Hugsið ykkur það, Sádi-Arabía og Rússland samanlagt, og sú tala mun brátt verða enn hærri. Það er ekkert land eins og okkar í heiminum, og við erum í frábærri stöðu fyrir framtíðina. Bandaríkin flytja nánast enga olíu inn um Hormuz-sundið og munu ekki gera það í framtíðinni. Við þurfum þess ekki. Við höfum ekki þurft þess og þurfum þess ekki.
Við höfum sigrað Íran og gjörsamlega lamað það. Það er lamað, bæði hernaðarlega, efnahagslega og á allan annan hátt. Og þau ríki heims sem fá olíu um Hormuz-sundið verða að sjá um þá siglingaleið. Þau verða að meta hana og verja hana. Þau geta gert það auðveldlega. Við munum hjálpa, en þau ættu að leiða verndina á olíunni sem þau treysta svo mjög á. Svo til þeirra landa sem ekki geta fengið eldsneyti, mörg þeirra sem neituðu að taka þátt í aðgerðum gegn Íran, við þurftum að standa í þessu sjálf, þá ég hef tillögu. Í fyrsta lagi, kaupið olíu frá Bandaríkjum. Við eigum nóg. Við eigum svo mikið. Og í öðru lagi, byggið upp eitthvað af síðbúnu hugrekki. Þið hefðuð átt að gera það fyrr. Hefðuð átt að gera það með okkur, eins og við báðum um. Farið að sundinu og einfaldlega takið það, verjið það, notið það sjálf. Íran hefur í raun verið lamað. Erfiðasti hlutinn er búinn. Þannig að þetta ætti að vera auðvelt.
Og í öllum tilvikum, þegar þessum átökum lýkur, mun sundið opnast af sjálfu sér. Það mun einfaldlega opnast af sjálfu sér. Þeir munu vilja selja olíu, því það er allt sem þeir hafa til að reyna að endurbyggja landið. Flæðið mun hefjast á ný og bensínverð mun lækka hratt, hlutabréfaverð mun hækka hratt. Það hefur reyndar ekki lækkað mikið. Það lækkaði aðeins, en síðustu daga hafa verið mjög góðir. Við höfum í raun staðið okkur betur en ég bjóst við, en við þurftum að fara í þennan stutta leiðangur til Írans til að losna við þessa hræðilegu ógn.
Með sögulegum skattalækkunum okkar, þar sem fólk er núna að tala um að fá meiri endurgreiðslur en það hafði nokkru sinni ímyndað sér, fær það miklu meira fé en það bjóst við. Það kemur frá hinu stóra, fallega frumvarpi. Hagkerfi okkar er sterkt og batnar með hverjum degi, og það mun brátt taka við sér eins og aldrei áður. Það mun fara fram úr því sem það var fyrir mánuði síðan.
Ég hef gert það skýrt frá upphafi aðgerðarinnar Sögulegri reiði, Epic Fury, að við munum halda áfram þar til markmiðum okkar er fullkomlega náð. Þökk sé þeim árangri sem við höfum náð get ég sagt í kvöld að við erum á réttri leið með að ljúka öllum hernaðarmarkmiðum Bandaríkjanna fljótlega, mjög fljótlega. Við ætlum að ráðast á þá af miklum krafti næstu tvær til þrjár vikur. Við ætlum að færa þá aftur á steinöld, þar sem þeir eiga heima.
Á meðan eru viðræður í gangi. Stjórnarbreyting var ekki markmið okkar. Við sögðum aldrei stjórnarbreytingu, en hún hefur átt sér stað vegna dauða allra fyrri leiðtoga þeirra. Þeir eru allir látnir. Nýi hópurinn er minna róttækur og mun skynsamari. En ef ekkert samkomulag næst á þessu tímabili höfum við augun á lykilskotmörkum. Ef ekkert samkomulag næst munum við ráðast mjög hart á hvert og eitt raforkuver þeirra og líklega samtímis. Við höfum ekki ráðist á olíu þeirra, þó að það sé auðveldasta skotmarkið af öllum, því það myndi ekki gefa þeim einu sinni smá möguleika á að lifa af eða endurbyggja. En við gætum ráðist á hana, og hún hyrfi og þeir gætu ekkert gert í því.
Þeir hafa engan loftvarnabúnað, ratsjárkerfi þeirra er 100% eyðilagt, við erum óstöðvandi sem herafli, kjarnorkustaðirnir sem við eyddum með B-2 sprengjuvélunum hafa verið slegnir svo mikið að það myndi taka mánuði að komast nálægt kjarnorkurykinu, og við höfum það undir miklu gervihnattaeftirliti og stjórn. Ef við sjáum þá gera hreyfingu, jafnvel hreyfingu í átt að því, munum við ráðast aftur mjög hart á þá með eldflaugum. Við höfum öll trompin á hendi. Þeir hafa engin. Það er mjög mikilvægt að halda þessum átökum í samhengi.
Þátttaka Bandaríkjanna í fyrri heimsstyrjöldinni stóð í eitt ár, sjö mánuði og fimm daga. Seinni heimsstyrjöldin stóð í þrjú ár, átta mánuði og 25 daga. Kóreustríðið stóð í þrjú ár, einn mánuð og tvo daga. Víetnamstríðið stóð í 19 ár, fimm mánuði og 29 daga. Íraksstríðið stóð í átta ár, átta mánuði og 28 daga. Við höfum verið í þessari hernaðaraðgerð, svo öflugri, svo „snjallri“, gegn einu af öflugustu löndum heims í 32 daga, og landið hefur verið sundurtætt og er í raun ekki lengur ógn.
Þeir voru kúgari Miðausturlanda, en eru það ekki lengur. Þetta er raunveruleg fjárfesting í framtíð barna ykkar og barnabarna. Allur heimurinn fylgist með, og þeir geta ekki trúað kraftinum, styrknum og snilldinni. Þeir geta einfaldlega ekki trúað því sem þeir sjá. Látið ímyndunaraflið ráða, en þeir geta ekki trúað því sem þeir sjá, snilld bandaríska hersins. Í kvöld getur hver Bandaríkjamaður horft fram á dag þegar við erum loksins laus við illsku íranskra árása og hótun kjarnorkukúgunar. Vegna aðgerða okkar erum við á mörkum þess að binda enda á ógn Írans við Bandaríkin og heiminn. Og ég segi ykkur, heimurinn fylgist með, og þegar þessu lýkur munu Bandaríkin vera öruggari, sterkari, ríkari og meira en nokkru sinni fyrr. Guð blessi menn og konur í bandaríska hernum, og Guð blessi Bandaríki Ameríku. Kærar þakkir og góða nótt.”
