Pólskur ESB-þingmaður hringir viðvörunarbjöllum vegna fyrirhugaðrar útvíkkunar á valdsviði Europol hjá ESB

Hvaða varnir verði fyrir hendi til að tryggja að Europol haldi áfram að vera stofnun sem styður aðildarríkin en verði ekki yfirvald sem fer með beinar lögregluheimildir?

Mariusz Kamiński er pólskur ESB-þingmaður frá flokknu Lög og réttlæti (PiS). Hann hringir viðvörunarbjöllum vegna áforma framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um að breyta starfsemi Europol og varar við því að „framkvæmdastjórnin sé í hljóði að byggja upp löggæslustofnanir ESB“, að því er Do Rzeczy greinir frá. Óttablandnar áhyggjur vaxa af því að ESB fái sitt eigið FBI, með verulega auknum og miðstýrðum völdum.

ESB vill fá eigin lögreglu sem starfar fam hjá yfirvöldum aðildarríkjanna

Hinn fyrrum innanríkis- og stjórnsýsluráðherrann Póllands skrifar á X:

„Evrópska saksóknaraembættið hefur þegar verið sett á laggirnar, og núna vill framkvæmdastjórnin breyta Europol í ‘raunverulega starfandi lögreglustofnun ESB’. Þetta þýðir að almenningur aðildarríkjanna gæti orðið skotmark rannsókna og aðgerða evrópskra löggæslustofnana, framhjá innlendum yfirvöldum. Þetta væri raunverulegur ‘áfangi’ í uppbyggingu miðstýrðs evrópsks ríkis. Mjög hættuleg staða!“

Kamiński sendi framkvæmdastjórn Evrópusambandsins bréf þar sem hann setur fram spurningar um starfsemi Europol sem hefur verið starfrækt síðan 3. janúar 1994.

Hann bendir á að:

„Árangur Europol byggist á samstarfi, stuðningi við aðildarríkin og samhæfingu í baráttunni gegn glæpum yfir landamæri. Starfsemi Europol er sérstaklega mikilvæg í baráttunni gegn fíkniefnabrotum, mansali og virðisaukaskattssvikum. Þetta fyrirkomulag er gott dæmi um árangursríkt samstarf á evrópskum vettvangi.“

Mariusz Kamiński heldur áfram:

„Þess vegna er ég andvígur yfirlýsingum um að umbreyta Europol í fullkomlega starfandi lögreglustofnun, sem hafa verið gagnrýndar af mörgum sérfræðingum og aðildarríkjum. Á fundi LIBE-nefndarinnar 19. mars 2026 lauk framkvæmdastjórinn Brunner máli sínu með því að segja að þetta verði ekki evrópskt FBI, sem má túlka sem fráhvarf frá róttækum yfirlýsingum framkvæmdastjórnarinnar.“

PiS-þingmaðurinn spyr: „Hvernig skilur framkvæmdastjórnin hugtakið ‘raunverulega starfandi lögreglustofnun’?“ Hann spyr einnig, hvaða varnir verði fyrir hendi til að tryggja að Europol „haldi áfram að vera stofnun sem styður aðildarríkin en verði ekki yfirvald sem fer með beinar lögregluheimildir.“