Pólski ESB-þingmaðurinn Grzegorz Braun kallar ekki allt ömmu sína. Á þriðjudagsmorgun mótmælti hann loftslagsstefnu ESB á eftirminnilegan hátt með því að kveikja í ESB-fánanum fyrir utan opinbera byggingu iðnaðarráðuneytisins í borginni Katowice í suður Póllandi. Hann og flokkur hans Samband pólsku krúnunnar „Konfeferacja Korny Polskiej“ krefjast svara ríkisstjórnarinnar á því, hvers vegna verið er að loka öllum kolanámum í Póllandi í nafni grænu umskiptanna.
Eftir að hafa mótmælt við embættismenn í ráðuneytinu fór Braun út og kippti með sér einum ESB fána í leiðinni sem hann kveikti síðan í og brenndi til ösku að viðstöddum blaðamönnum. Má sjá myndskeið af ESB-fánabrennunni hér að neðan.
Braun ber ekki mikla virðingu fyrir ESB. Hann útskýrir hvað ESB-fáninn er:
„Þetta er tuskubútur með merki ófinnanlega landsins sem gerir tilkall til að drottna yfir lífum Pólverja, heilsu þeirra og eigum. Við heiðrum ekki kennitákn slíks sambands sem hefur engan lagalegan rétt á fullvalda ríki okkar.“
Braun segir að núverandi ESB-undirlægjustjórn Póllands með Donald Tusk fyrrum kommissjóner ESB sé að leggja niður alla kolaframleiðslu í Póllandi að beiðni grænpostula og loftslagspáfa ESB. Hann vísaði til námunnar Wujek sem varð táknræn fyrir andspyrnu Pólverja gegn kommúnistastjórn Sovétríkjanna. Hann lýsti ESB sem nýju sovéti í Evrópu og sagði:
„Evrukommúnisminn teygir klær sínar í börnin okkar, heilsu okkar, peningana okkar og auðlindir – kolið framar öllu, svarta gullið sem við höfum nóg af. Þessir aðilar reyna núna að loka námum okkar, leggja niður orkuiðnaðinn og gera okkur háða sér.“
I bardzo dobrze! Won z Zielonym Ładem! Won z karaniem za "mowę nienawiści"! Won z terrorem "praworządności"! A tym, którzy będą krzyczeć, że @GrzegorzBraun_ złamał prawo, wyjaśniam, że nie ma przepisów chroniących tzw. flagę UE. Można ją opluć, spalić lub wytrzeć w nią buty! https://t.co/AIZBAUUwCM
— Katarzyna Treter-Sierpińska (@katarzyna_ts) May 6, 2025
Viðbrögðin létu ekki standa á sér: Lögreglan hefur hafið rannsókn á brennuvarginum, iðnaðarráðuneytið ætlar að leggja fram formlega kæru um skemmdarverk og forseti þingsins Szymon Hotownia segir fánabrennu Brauns „skaðlega og sjúklega.“
En stuðningurinn streymir úr öllum áttum á samfélagsmiðlum til Brauns. Meðal þeirra skrifar útgefandinn Katarzyna Treter-Sierpinska á X:
„Niður með Græna samninginn, niður með haturslögin! Það eru engin lög sem vernda ESB-fánann. Þú getur hrækt á hann, brennt hann eða þurrkað skóna þína með honum.“
Hér að neðan má sjá myndband með ræðu Brauns fyrir utan iðnaðarráðuneytið.