Opin landamæri enda með uppreisn innfæddra

Mikil mótmæli og átök hafa átt sér stað í Bretlandi og á Norður-Írlandi frá því í nóvember gegn opnum landamærum og hömlulausum innflutningi fólks sem oft nýtur betri kjara og forgangsröðunar fram yfir innfædda. Það er skiljanlegt að innfæddir sem hafa verið skattpíndir til að borga fyrir velferðakerfið og komandi ellilífeyrir sjá allt í einu útlendinga ryðjast inn og fá aðgang að því sem innfæddir hafa skapað. Slík aðkoma er að sjálfsögðu ekkert annað en innrás eins og hæstaréttarlögmaðurinn Jón Magnússon sagði í viðtali við Ísafold við áramótin.

Nokkrir fréttaskýrendur hafa tekið saman yfirlit yfir mótsetningarnar í Bretlandi og Norður-Írlandi eins og sjá má á meðfylgjandi myndbandi. Mótmælendur hafa meðal annars ráðist á hótel, þar sem hælisleitendur fá frítt húsnæði og mat. Myndskeiðið skýrir frá því eldfima ástandi sem þessi hömlulausi innflutningur hefur skapað og eru Bretar búnir að fá sig fullsadda af stuðningi yfirvalda og yfirhylmingu með innfluttum nauðgurum og morðingjum.

Mótmælagöngur Breta í haust hafa skapað ótta hjá valdelítunni og Starmer sér sína sæng útbreidda í næstu kosningum, þar sem Nils Farage er spáð glæsilegum sigri.

Fara efst á síðu