Ætlar utanríkismálanefnd alþingis að hlaupa á eftir Kúbu, Íran, Rússlandi, Kína, Brasilíu, Mexíkó og Kólumbíu til varnar Maduro?

Vinstri menn froðufella í eftirsjá eftir einræðisherranum, Nicolas Maduro, sem réttilega var handtekinn í snarpri og árangursríkri aðgerð Bandaríkjanna. Maduro er glæpamaður sem til og með Biden-stjórnin þóttist vera á móti en veitti samt peninga fyrir „lýðræði“ sem aldrei sást. Venesúelubúar um allan heim fagna og eins og nóbelsverðlaunahafinn María Corina Machado lýsti yfir, þá er tími frelsisins runninn upp og þakka ber Bandaríkjastjórn og Donald Trump fyrir það.

Kratar um allan heim ættu að fagna með almenningi Venesúela að fá loksins hjálp gegn kommúnísku harðræði og gjörspilltri stjórn einstaklinga sem engum kæmi á óvart að væru beinir aðilar að einhverjum þeim eiturlyfjahringjum sem starfa í landinu. Kratar hrópa lýðræði og þykjast berjast fyrir því en þegar kemur að því að gera eitthvað, þá hlaupa þeir undan, halda fundi og froðan flæðir um að ekki megi brjóta alþjóðalög.

Þeir sem stjórna stofnunum eins og SÞ, WHO m.fl. syngja þennan söng sósíalista og vinstri manna um allan heim: Það er bannað að brjóta alþjóðalög! Þar sitja þeir nefnilega sjálfir í stjórn og kvelja mannkyn með lygum um að jörðin farist nema að fjárfest verði í kínverskum vindmyllum og sólarpanelum. Þeir senda einnig frá sér lygar um fjölda kynja og ganga gegn gildum kristinna manna og boðorðunum tíum og rugla ungabörn með andstyggilegu kynræðisrugli. Frá þessu sama fólki kom einnig lygin um heimsfaraldurinn sem var enginn faraldur en lyfjarisum leyft að gera tilraun á mannkyni með genabreytandi efnum sem drepur fólk og enginn hefur séð fyrir endann á. Sama fólkið, sömu stofnanirnar komu einnig með opin landamæri til að drepa niður allt þjóðlegt í Evrópu með fjöldainnflutningi sem hefur valdið því sem næst innanlandsstríðsátökum í sumum löndum ESB og UK.

Vinstri fjölmiðlar eru síðan notaðir til að ófrægja og rakka niður alla þá, sem leita sannleikans og segja sannleikann. Þegar kratar og vinstri menn stjórna löggjöfinni verður afleiðingin sundrung, lögleysa, stjórnleysi, upplausn. Það er það sem þeir eiga við með því að segja að „allir verða að framfylgja alþjóðalögum.“ Þetta er nákvæmlega það sama og haldið var að þýskum almenningi, þegar Hitler var við völd í Þýskalandi. Það mátti ekki brjóta lögin. Allir vita hvernig það fór og er endurtekið í sífellu, þegar einræðisherrar eins og Nicolas Maduro er löggjafinn.

Og hver hefur kosið Magdalenu Andersson, leiðtoga sænskra jafnaðarmanna, til að stjórna Íslandi? Hún er stríðspúki úr því neðra sem etur Svíum út í að kála sér í komandi stríði við Rússland og vill ríkisvæða vopnaframleiðslu. Aumingjaháttur Dagbjartar Hákonardóttur og yfirlýsingar er úldin tuska í andlit Íslendinga, því Íslendingar eru sjálfstæð þjóð sem Dagbjört hefur greinilega ekki enn frétt afsamanber: „Alþjóðasamfélagið, ekki síst Evrópusambandið, þjónar nú því mikilvæga hlutverki að styðja við friðsamlegar lausnir með aðkomu þeirra sem hlut eiga að máli… bla…bla…bla.“

Á meðan ESB vill stríð við Rússland í stað friðar, getur enginn, hvorki á Íslandi né annars staðar talað um ESB sem friðarsamband. ESB undirbýr stríð og hefur hvað eftir annað hindrað friðarsamræður við Rússland enda hefur það lýst Pútín sem ómennsku skrímsli sem enginn má tala við. Bara drepa. Sambandið er því gjörbreytt og fjárfestir og tekur lán fyrir hervæðingu aðildarríkjanna fyrir komandi heimsstyrjöld.

Vonandi fer utanríkismálanefnd Alþingis vandlega yfir stöðuna og tekur þá ákvörðun að styðja handtöku Nicolas Maduro og aðgerðir Bandaríkjanna. Í leiðinn má svo segja Ísland úr WHO, Parísarsamkomulaginu, Schengen og öllum svikasamningum Þorgerðar kúlulánadrottningu m.fl. við ESB.

Núna er að hrökkva og standa með lýðræðinu – eða sökkva með alþjóðapostulum ESB.

Fara efst á síðu