Enginn stjórnmálaflokkur á Alþingi kláraði prófið

Í fyrsta þætti Ísafoldar árið 2026 ræða þau Íris Erlingsdóttir og Gústaf Skúlason við Arnar Þór Jónsson formann Lýðræðisflokksins og hæstaréttarlögmann og líta til baka á þau fimm mál sem hvað mest hafa mætt á almenningi á Íslandi og Vesturlöndum síðustu ár. Málin eru: Loftslagsváin, Heimsfaraldurinn, Femínisminn, Fjöldainnflutningurinnn og Úkraínustríðið. Er um stærstu mál sem flokkast öll meira eða minna undir samheitið svik, því lygar einkenna þau flest og þvinganir þar sem skautað er fram hjá lögum eins og til dæmis í Covid-19.

Spurningin er hvernig íslensku stjórnmálaflokkarnir hafa staðist þetta álag og hverjir hafa barist á grundvelli íslensku stjórnarskrárinnar fyrir hagsmunum Íslands. Þessi stutta yfirferð er að sjálfsögðu engin tæmandi rannsókn en gefur vísbendingu um hvernig komið er fyrir þjóðinni og flokkakerfinu á Íslandi en allir stjórnmálaflokkar á Íslandi hafa stuðlað að innfærslu þessara svika á Íslandi. Stjórnmálaflokkarnir hafa ekki staðist prófið og svikið kjósendur um það hlutverk sem stjórnmálamenn eru kosnir til að gegna.

En pendúllinn snýst við og sífellt fleiri vakna til meðvitundar um loftslagslygar og lygar um heimsfaraldurinn. Þá eru innflytjendamálin komin í slíkan ólestur að jaðrar við borgarastyrjöld í sumum ríkjum ESB og Bretlandi. Sama þróun á sér stað á Íslandi og mótmæli á Austurvelli og nýjar pólitískar hreyfingar Þvert á flokka vaxa fram. Lýðræðisflokkurinn er líklega eini stjórnmálaflokkurinn sem hefur heildarsýn á ástandinu enda óbundinn af þeirri kerfisspillingu sem viðgengst á Íslandi með tilstuðlan spilltra fjölmiðla eins og RÚV.

Ástandið er grafalvarlegt en ekki vonlaust. Þjóðin getur tekið í taumana og endurnýjað stjórnmálastéttina með nýjum einstaklingum ómenguðum af hrossakaupmennsku og undirlægjuhætti við erlend ríki. Stjórnmálamenn og flokkar á Alþingi sem hamra með starandi augnaráði á hlýðni við alþjóðalög eru tímaskekkja í því ástandi sem ríkir núna í heiminum eins og sýnir sig í nýlegri handtöku Bandaríkjanna á Nicolas Marduro sem er kærður fyrir eiturlyfjasmygl og stórfelldan þjófnað á eigum Venesúela. Mikill fögnuður Venesúelabúa og einnig meðal þeirra 8 milljóna sem flúið hafa land undanfarin ár og sumir dveljast á Íslandi, sannar að frelsisþrá almennings er sterk ef fólk hefur stjórnmálamenn sem virða þarfir fólks og vinna í þágu kjósenda.

Smelltu á spilarann að neðan til að horfa á þáttinn:

Fara efst á síðu