Trump: „Við skulum tala um Grænland eftir 20 daga“

Eftir hina vel heppnuðu og vinsælu handtöku einræðisherra Venesúela, Nicolas Maduro, þá ræddi Donald Trump Bandaríkjaforseti við blaðamenn um borð í forsetaflugvélinni (sjá Youtube að neðan). Blaðamenn vildu ræða Grænland en Trump sagðist frekar vilja ræða um Venesúela, Rússland og Úkraínu. En sagði svo að eftir um það bil 20 daga væri hægt að ræða um Grænland. Hann útskýrði enn á ný þýðingu Grænlands fyrir varnir Bandaríkjanna og sagði að Danmörk gæti lítið gert í sambandi við þær varnir: „Þeir sendu hundasleða þangað.“

Trump útskýrði áhuga Bandaríkjanna á Grænlandi:

„Við þurfum Grænland frá þjóðaröryggissjónarmiði og Danmörk mun ekki geta gert það. Það eru rússnesk og kínversk skip allt um kring. Evrópusambandið þarf okkur þarna og þeir vita um það. Við skulum tala um Grænland eftir 20 daga.

Vitið þið hvað Danmörk gerði nýlega til að auka öryggið á Grænlandi? Þeir sendu annan hundasleða þangað.“

Málið er ekki flóknara en svo og reyndar löngu vitað að Grænland og Ísland eru mikilvæg lönd í varnarkeðju Bandaríkjanna. Evrópusambandið sem gerir ekkert gert nema tala orðin tóm varðandi einræðisherra eins og Maduro, reynir allt sem það getur til að sverta Trump og ásaka um að hann sé líklegur til að taka Grænland með hervaldi. Sem Nató meðlimir ættu bæði Danmörk og Ísland að hætta skítkasti út í Bandaríkin og fara í staðinn að vinna með með vinum okkar Bandaríkjamönnum og endurnýja samstarfssamninga við þá öllum til góðs.

En miðað við umræðu um fund utanríkismálanefndar eru íslenskir ráðamenn grútspældir út í Trump fyrir að taka athyglina frá þeim vegna þess að hann er maður aðgerða en valkyrjurnar gera ekkert nema að hafa fyrst fengið ákvörðun frá ESB-hirðinni í Brussel og álit formanns jafnaðarmanna í Svíþjóð. Ráðamenn ESB þola ekki hreinskilinn og heiðarlegan mann eins og Trump sem þorir að gagnrýna spillingu alþjóðastofnana, hvort svo sem það eru SÞ eða ESB.

Fara efst á síðu