Eldur kom upp um helgina sem sló út rafmagni í tugþúsundum heimila í þýsku höfuðborginni Berlín. Öfgavinstrihópur sem mótmælir meintri loftslagskreppu og gervigreind hefur lýst sig ábyrgan.
Eldurinn kom upp á brú yfir Teltow-skurðinn í suðvesturhluta höfuðborgarinnar snemma á laugardag og hefur orsakað að allt að 35.000 heimili og 1.900 fyrirtæki gætu verið án rafmagns eða hita fram á fimmtudag.
Þegar yfirvöld hófu rannsókn á orsökum eldsins sagði þekktur vinstri öfgahópur, Vulkangruppen, að vísvitandi hafi verið miðað á nokkur af ríkustu hverfum borgarinnar. Hópurinn segir að markmiðið sé að raska virkni „daglegs kapítalísks lífs“ og fá fólk til að staldra við og hugleiða. Í 2.500 orða bæklingi sem The Guardian hefur séð, sem talsmaður lögreglu lýsti sem „trúverðugum“ segir hópurinn að þeir hafi verið að „skera safann úr valdastéttinni.“
Þeir fordæma „græðgi eftir orku“ sem framleidd er af jarðefnaeldsneyti og losar gróðurhúsalofttegundir og segja árásina vara „athöfn í almannaþágu“ og „sjálfsvarnarathöfn í alþjóðlegri samstöðu með öllum þeim sem vernda jörðina og lífið“.
Líkar ekki við gervigreind
Hópurinn telur einnig að gagnaver sem notuð eru fyrir gervigreind auki vandamálið með orkunotkun sem skaðar loftslagið og skapi samfélagslegar hættur.
„Við leggjum okkar af mörkum til eigin eftirlits og það er umfangsmikið. Tæknifyrirtækin eru í höndum manna með það vald sem við gefum þeim. Einn daginn munum við einfaldlega sitja fyrir framan bjarta skjái eða dauðar vélar á meðan við deyjum úr þorsta og hungri.“
Mörg hjúkrunarheimili og sjúkrahús eru á svæðinu sem varð rafmagnslaus og einnig mörg háhýsi með íbúum sem þurfa að nota lyftur sem hafa stöðvast. Að auki er frost á nóttunni.
Kai Wegner, borgarstjóri Berlínar, sagði í heimsókn í neyðarskýli fyrir þá sem eru án hitunar og heits vatns sagði að það væri óásættanlegt að vinstri sinnaðir öfgamenn ráðist enn á ný opinberlega á raforkukerfið og stofni þannig mannslífum í hættu.
Þegar farsímakerfi urðu einnig fyrir áhrifum þurfti lögreglan að nota hátalara sem festir voru við bíla sína til að upplýsa almenning á meðan hún aðstoðaði fólk sem þurfti á umönnun að halda.
Fyrri íkveikjuárás öfgavinstrimanna í september sló út rafmagni í 60 klukkustundir í suðausturhluta borgarinnar, sem var að sögn lengsta rafmagnsleysi Berlínar síðan í seinni heimsstyrjöldinni.
