Vinstri menn heims, líka á Íslandi, eru yfir sig móðgaðir á árás Bandaríkjanna á Venesúela, sem endaði með handtöku eins versta glæpamanns landsins, einræðisherrans Nicolas Maduro. Vinstri men styðja ógnarstjórn kommúnista á almenningi í landi sem margir hafa flúið frá. Búrókratar ESB og Þorgerður kúlulánadrottning Íslands senda frá sér orðavaðal og ríghalda sér í pennastrikið. Almenningur í Venesúela ásamt þeim sem þurft hafa að flýja land vegna ógnarstjórnarinnar fagna hins vegar handtöku Maduro. Dagur frelsis er upp risinn fyrir Venesúela segir fólkið.
„Alþjóðleg lög, það má ekki brjóta alþjóðleg lög, Trump og Bandaríkin eru vonda fólkið, þau brjóta lög.“ Þeir sem hótar öllu illu ef alþjóðalögum er ekki framfylgt er einmitt sama fólkið sem búið er að eyðileggja stofnanir eins og SÞ og WHO og gera að verkfæri fyrir menn eins og Maduro. Þeir sem eru að reyna að breyta hinum vestræna heimi í alheimsógnarríki a la Venesúela nota einmitt alþjóðastofnanirnar til þess að breyta alþjóðalögum og þvinga aðrar þjóðir með sér nauðugar til undirgefni. Þetta hefur Trump og Bandaríkjastjórn séð fyrir löngu síðan enda farnir úr WHO og hafa snúið baki við þeim sem stöðva rúllustiga, þegar bandarísku hjónin þurfa að fara á milli hæða í SÞ.
Hér er smá myndskeið frá fögnuði Venesúelabúa:
Hér útskýrir Ben Shapiro málin:
ESB segist styðja „lýðræðisleg umskipti“ EN…….
Leiðtogar ESB, Ursula von der Leyen og Kaja Kallas, segjast styðja friðsamleg og lýðræðisleg umskipti EN enginn má brjóta alþjóðalög eða sáttmála SÞ:

Utanríkisráðherra ESB, Kaja Kallas, segir að ESB telji Maduro skorta lögmæti og að Brussel hafi lengi barist fyrir stjórnarbreytingum í landinu EN undir engum kringumstæðum má vinna gegn alþjóðalögum og sáttmála SÞ:

Trump ánægður með árásina
Eftir árásina og handtöku Nicolás Maduro, forseta Venesúela, segir Donald Trump að Bandaríkin muni gegna virku hlutverki í olíuiðnaði landsins og einnig varðandi við að ný stjórn taki við. Trump leggur áherslu á að aðgerðin hafi verið framkvæmd án mannfalls Bandaríkjamanna – aðeins meiðsla. Samkvæmt AFP fréttastofunni fylgdist Trump með handtökunni í rauntíma.
Forsetinn segir enn fremur að Maduro hafi hafnað að ræða bæði fíkniefnasmygl og olíu daginn fyrir árásina. Trump sagði í Fox News að þá hafi það komið í hlut Bandaríkjamanna að grípa til aðgerða.
Trump sagði enn fremur að Maduro hafi verið handtekinn í svefnherbergi sínu. Brynvarið hús sem bandarískir sérsveitarmenn brutust inn í.
Hér að neðan er myndskeið frá blaðamannfundi Bandaríkjastjórnar eftir árásina:
