Trump vill gefa Venesúela tækifæri að blómstra á ný

Á laugardagskvöldið að staðartíma gerði bandaríski flugherinn árás á hernaðarmannvirki í Venesúela. Stuttu eftir árásina tilkynnti Trump að Nicolás Maduro, einræðisherra Venesúela, og eiginkona hans hefðu verið handtekin af bandarískum sérsveitum og flutt úr landi. Síðar var parið ákært í Bandaríkjunum. Trump sagði í viðtali við Fox News að Bandaríkin muni vinna með innlendum aðilum í Venesúela sem mynda stjórn landsins í framtíðinni. Trump sagði einnig að Venesúela hefði stolið olíustöðvum sem Bandaríkjamenn byggðu í landinu. Munu stærstu olíufélög heims koma inn með fé og byggja upp olíuiðnað Venesúela.

Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði á blaðamannafundi um árásina á Venesúela og handtöku Maduro:

„Við munum stjórna Venesúela þar til við getum afhent hana á öruggan hátt.“

Sósíalistaleiðtogi Venesúela Nicolás Maduro er sakaður um að veita skjól og starfa með glæpagengjum og skæruliðum sem stjórna einnig fíkniefnasmygli til Bandaríkjanna. Bandaríkjamenn hafa grandað skipum eiturlyfjasmyglara og margreynt að semja við Maduro sem valdi áframhaldandi glæpamennsku í stað samstarfs við Bandaríkjamenn.

Gagnrýnendur halda því fram að Venesúela sé ekki fíkniefnasmyglari á sama hátt og til dæmis Kólumbía, þar sem stór hluti kókaínframleiðslu fer fram sem er flutt til Bandaríkjanna og Evrópu í gegnum glæpahópa. Þegar kemur að fentanyli benda margir á Kína sem upprunaland og svo vildi til að árásin á Venesúela kom nokkrum tímum eftir fund Maduro og kínverskrar sendinefndar í forsetahöllinni.

Donald Trump skrifaði á Truth Social í desember 2025:

„Venesúela er algjörlega umkringd stærsta flota í sögu Suður-Ameríku. Hann mun aðeins vaxa og áfallið fyrir þá verður ólíkt öllu sem þeir hafa upplifað áður – þangað til þeir skila til Bandaríkjanna allri olíunni, landi og öðrum eignum sem þeir hafa áður stolið frá okkur.“

Trump hrósaði hernum og sagði aðgerðina hafa heppnast vel. Sagði að herinn væri í viðbragðsstöðu ef þyrfti að grípa inn í atburðarásina að nýju en sagðist vona að til þess þyrfti ekki að koma. Hann sagði landsmenn Venesúela hafa búið við harðræði og margir flúið land sem gætu fljótlega snúið til síns heima að nýju. Hann sagði:

„Þetta var vel skipulagt, margir frábærir hermenn og frábært fólk. Þetta var frábær aðgerð.“

Nokkur myndbönd eru dreift á YouTube og samfélagsmiðlum sem sýna sprengingar í höfuðborginni Caracas og öðrum borgum.

Stjórn Venesúela í Karakas hefur lýst yfir neyðarástandi í landinu vegna árásarinnar. Stjórnin gagnrýnir Bandaríkin harðlega og lýsir árásum Bandaríkjanna sem alvarlegri hernaðarárás og broti á sáttmála Sameinuðu þjóðanna. Stjórnin segir í yfirlýsingu:

„Tilgangur þessarar árásar er að ná tökum á hernaðarauðlindum Venesúela, sérstaklega olíu og steinefnum, í tilraun til að brjóta með valdi pólitískt sjálfstæði þjóðarinnar. Þeim mun ekki takast það.“

Maduro einræðisherra Venesúela. Margir fagna handtöku hans.

Fara efst á síðu