Hatarar lýðræðisins

Rúvarar ýta undir fasistavæðingu Samfylkingarinnar og Viðreisnar

ESB á Davosgrunni óvina mannkyns ýtir undir liðssöfnun ríkja – ekki bara gegn Rússlandi, heldur í sífellt ríkara mæli gegn Bandaríkjunum. Engan skal undra, þótt Trump hnykki til, þegar svo kallaðir bandamenn Bandaríkjanna hóta að skjóta Bandaríkjamenn á Grænlandi og svíkja samningsbundið samstarf, þegar Bandaríkjamenn eru að koma í veg fyrir að Íran geti skotið kjarnorkusprengjum með flaugum sem ná alla leiðina til Stokkhólms og Oslo.

Bandaríkjamenn standa nú sem fyrr í forystu baráttunnar til verndar lýðræðis á Vesturlöndum en það vill ekki ESB og hlaupalingar hirðarinnar í Brussel. Þar er í staðinn verið að smíða ritskoðunarkerfi sem múlbindur alla einstaklinga sem stafræna þræla ógnarstjórnar, gengið beint með íhlutun í kosningar aðildarríkjanna og dólgslegum ólöglegum brögðum beitt eins og sá góði maður, Geir Waage sóknarprestur emeritus, ritar í Morgunblaði dagsins. Undir fyrirsögninni „Glatt á hjalla í Efstaleiti'” rekur hann, hvernig ESB er að eyðileggja líf svissneska fræðimannsins Jacques Baud, vegna skoðana hans.

Geir Waage skrifar:„Þann 12. desember 2025 frjetti J. Baud það á frjettasíðu Radio Free Europe að hann væri á lista ESB um þá sem fjellu undir refsiaðgerðir bandalagsins. Síðan 15. desember má hann ekki ferðast innan Evrópu, en hann er búsettur í Brussel og kemst því ekki heim; bankareikningar hans lokaðir, getur enga reikninga greitt, ekki keypt mat: Þeir sem hjálpa honum eiga yfir höfði sjer að verða handteknir og sæta ákæru. Sjálfur hefur hann engri ákæru sætt, getur því ekki varið hendur sínar; hefur engan vettvang til þess. Hann hefur ekkert brotið af sjer að lögum. Ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar um að gera honum allar bjargir bannaðar er ekki lagalegs eðlis, heldur einungis pólitísk, og því ólögmæt að evrópskum lögum: Hrein geðþóttaákvörðun.” 

Þetta er aðeins eitt dæmi af mörgum, því bankarnir eru notaðir til að eyðileggja líf margra frjálsra rithöfunda á Vesturlöndum. Frá Svíþjóð eru fjölmörg dæmi um að bankar hafi fyrirvaralaust og án nokkurrar ástæðu lokað bankareikningum einstaklinga sem reka óháða netmiðla. Hefur það valdið miklum skaða og búsifjum þeirra hugrökku sem ekki vilja fylgja vókstraumnum til heljar.

Á Íslandi hins vegar virðist það tíska að hrækja á rétt Bandaríkjamanna til að kjósa sér leiðtoga. Það er munur á Donald Trump fyrir vestan og Úrsúlu van der Leyen fyrir austan: Sá fyrrnefndi er lýðræðislega kjörinn fulltrúi þjóðar sinnar en þá síðarnefndu hefur enginn maður kosið í lýðræðislegum kosningum.

Það er merkilegt að sjá æsing rúvara sem gera van der Leyen að gyðju lýðræðis í vókheimum og hafna lýðræði Bandaríkjanna og frelsi í raunheimum. Þannig ríður áróðurssendiboði von der Leyen, rúvarinn Sigmar Guðmundsson, á mögrum rússahaturshesti Obama, Bidens og ESB í Morgunblaði dagsins, og boðar tryggð Íslands við ESB-skrímslið í stað einstaklingshyggju, lýðræðis, frjáls framtaks og frelsis. Rússabrellan er löngu dauð. Sannleikurinn hefur náð í skottið á þeim liðsmönnum sem Biden fékk til að ljúga um innihald tölvunnar frá helvíti sem átti að sanna að Trump væri njósnari Rússlands. Allt saman fallið, lygin tóm við dauðans hljóm.

Engu er líkar en að ESB sé að takast að endurvekja vofu Hitlers á meginlandinu sem teygir enn á ný anga sína til Íslands. Hitler ætlaði að taka Ísland og nota sem flugvöll fyrir árásir á Bandaríkin. Í dag eru Samfylkingin og Viðreisn helstu talsmenn þess að Ísland falli í hendur ESB og verði notað gegn Bandaríkjunum í baráttu fyrir brjálæðislegum markmiðum þeirra sem vilja afnema fullveldi þjóðríkja, frelsi og lýðræði. Sú eina snúra sem þetta lið hangir á er frasinn um „alþjóðalög og mannréttindi.”

Ekki að undra, vegna þess að spillingin hefur heltekið stofnanir eins og Sameinuðu þjóðirnar sem neytt hafa Bandaríkjamenn til að stofna Alþjóða friðarráðið sem virkan valkost við ónýtt spillingarbæli SÞ. Það eina sem rúvarar virðast þekkja er spilling, ritskoðun og árásir á lýðræðið.

Sorglegur er söngur þeirra.