Gangast vinstri menn Kristni á hönd?

Í nýju viðtali við Arnar Þór Jónsson, lögmann og leiðtoga Lýðræðisflokksins, er farið yfir nýafstaðnar sveitarstjórnarkosningar og hvað þær þýða fyrir þjóðina. Einnig er farið rækilega yfir þá andlýðræðislegu útbreiðslu stjórnmálanna í Evrópu sem og á Íslandi, þar sem fólk má þola ofsóknir fyrir að segja sannleikann.

Arnar Þór telur eins og margir Íslendingar að pendúllinn hafi ekki komist lengra í slaufunarmenningunni og sé nú á leiðinni til baka. Hann spáir því að vinstri menn munu lenda í hugmyndafræðilegum vandræðum og telur að margir þeirra munu snúa sér til Guðs og kristinnar trúar sem boðar mannkærleika í stað ofsókna, kúgunar og manndrápa. Sú veruleikafirring sem fangað hefur íslenska menningu einna verst allra á Vesturlöndum er því vonandi á undanhaldi en skaðsemi hennar hefur valdið gríðarlegu tjóni á lýðræðissamfélögum Vesturlanda. Á Íslandi hefur þróunin gengið það langt að misbrestur lækna í opinberum störfum leiða til skaðabóta fyrir skattgreiðendur í stað viðkomandi jafnvel þótt afleiðingin hafi verið dauði sjúklingsins.

Framundan er sú úrslitaorusta sem ríkisstjórnin hefur blásið til en Breitling-jafnaðarkonan Kristrún Frostadóttir sem þykist hjálpa fátækum er meira í mun að sjást á myndum í nýjum tískufötum, prýdd skartgripum en aðstoða fátæka til dæmis með matarpökkum fyrrverandi fjölskylduhjálpar. Hroki Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra endurspeglast í orðunum „Ég er ríkið” sem hafa verið og eru einkunnarorð einræðisherra og ógnarstjórna. Vegferð valkyrjanna að komast inn í Evrópusambandið botnar í ástríðu þeirra til eigin persónulegs frama og fjár. Forsætisráðherrann fetar í fótspor Katrínar Jakobsdóttir sem fékk feita stöðu sem forstöðumaður nefndar Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar WHO og krefst þess að WHO lýsi yfir neyðarástandi í heiminum vegna loftslagshita í Evrópu! Kristrún var nýlega tekin inn og eyrnamerkt sem Ungur alþjóða leiðtogi glóbaliztanna í Davos.

Alþingi og þar með íslenska þjóðin eru tekin í gíslingu, þegar einstaklingum í Belgíu sem enginn kosningabær maður í allri Evrópu hefur greitt, er afhent vald af lýðræðislega kjörnum fulltrúum Íslands til að taka yfir land og þjóð. ESB vegferðin er ólögleg samkvæmt íslenskri stjórnarskrá sem breyta verður við inngöngu Íslands í ESB til að tryggja alræði hinna erlendu aðila yfir löggjafa-, framkvæmda- og dómsvaldi landsmanna.

Logi Kjartansson hefur skrifað yfirgripsmikla greinargerð byggða á úttekt á stjórnarfarinu, þar sem kemur í ljós að nánast ríkir anarkismi á stjórnarheimilinu, þegar ekki er lengur tekið mark á stjórnarskránni og starfsreglum embættismanna ríkisins.

Fram undan er úrslitauppgjör við þau vinstri öfl sem eru að reyna að ná tökum á lýðræðisríkjum heims og birtist á Íslandi í ásælni í fiski- og orkuauðlindir. Þær brellur sem íslenska ríkisstjórnin hefur frammi með útbreiðslu falskra eftirvæntinga um stórkostlegan „samning” við ESB er einungis framkvæmd útlagðrar gildru frá ESB.

Markmiðið er að blekkja Íslendinga til að segja já um eitthvað allt annað en málið snýst um: framsal fullveldis og sjálfsákvörðunarréttar Íslendinga til að ráða örlögum sínum sjálfir.