Skólinn er fallinn með 4,9

Hlutirnir gerast hratt þessa dagana. Valkyrjurnar hafa valtað yfir þing og þjóð, skilja lýðræðið eftir heimilslaust á götunni og heimta að þjóðin segi já við því „að kíkja í pakkann” eina ferðina enn. Öllum öðrum en ESB ráðherrum ríkisstjórnarinnar er fyrir löngu ljóst eftir fyrra bjölluatið í Brussel, hvað er í pakkanum en núna á að eyða sumarfríi heillar þjóðar og heilindum hennar í það að kosta námskeið fyrir ríkisstjórnina svo hún komist að sömu niðurstöðu í bjölluati 2.0 eins og kom upp úr pakkanum í bjölluati 1.0 sem kostaði sitt mitt í fjármálasárunum sem útrásarvíkingarnir skildu eftir sig.

Evrópusambandið dælir fé í hvern sem vill koma með í grýluherferð gegn með þjóðinni veifandi Trump sem núna er sagður vera á bak við stokka og steina á Íslandi. Hræða á þjóðina til að flýja með valkyrjunum inn í ESB svo þær geti setið að sumbli í veislusölum skulda- og reglugerðafargans bandalagsins í Brussel.

Og svo eru það kvenréttindahreyfingin á Íslandi sem hefur breyst í hreyfingu til að útiloka og útrýma karlmönnum í störfum skólakerfisins. Þegar litið er á skólastjórn grunnskóla Reykjavíkur, þá starfar bara einn karlmaður á móti hverjum sjö konum. Íris Erlingsdóttir rannsakaði málið og segir að um 90% konur séu þar að störfum og það sé eins og að vinna í eurojackpot at fá karlmann sem kennara.

Var þetta markmið þeirra kvenna sem fóru í verkfall frá vaskinum fyrir hálfri öld síðan, að kynjajöfnuður þýddi að útiloka ætti karlmenn frá opinberum störfum?

Er það nema von að íslensk börn læri ekki lengur að lesa og reikna í grunnskólum landsins.

Ísafold gefur skólakerfi Íslands falleinkunnina F = FALLINN!

Fallinn með 4,9.

Smelltu á spilarann hér að neðan til að sjá þáttinn: