ESB-þjóðaratkvæði er löngu dautt hross

Páll Vilhjálmsson, blaðamaður og bloggari, fyrrverandi kennari, hefur skrifað fjölda margar greinar um Evrópusambandið og það klúður sem Valkyrjurnar svo kölluðu eru að draga þjóðina í vegna atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB. Í niðurlagi greinar um blekkingu Kristrúnar Frostadóttur, forsætisráðherra, sem heldur því fram að halda verði þjóðaratkvæðagreiðsla til að ESB vilji ræða við Ísland skrifar Páll Vilhjálmsson:

Gústaf Skúlason Þjóðólfi og Páll Vilhjálmsson blaðamaður.

„ESB-þjóðaratkvæði er löngu dautt hross. Áður en ýldan fyllir vit ætti alþingi að husla hræið.”

Í þessum þætti Þjóðólfs ræða þeir Gústaf Skúlason og Páll Vilhjálmsson fnykinn af líkinu og allt klúðrið í sambandi við fyrirhugað þjóðaratkvæði um aðild Íslands að ESB. 

Ekkert ríki fyrr en Ísland segist halda þjóðaratkvæðagreiðslu um að „kíkja í pakkann.” Þetta er blekking og ósannindi þar sem aðildarviðræður eru ferli þar sem aðlögun og afhending valds er í köflum sem eru opnaðir og lokaðir í ferlinu. Segir þjóðin já í komandi atkvæðagreiðslu verður það túlkað sem að þjóðin vilji ganga í ESB. Páll segir herferð valkyrjanna vera „undirförul, ólýðræðisleg handabaksvinnubrögð og algjör óskapnaður ef keyra á þetta gegnum þingið á 2-3 dögum.”

ESB ásælist Íslands vegna orku, sjávarútvegs, fiskimiða og ekki síst þýðingarmikillar hernaðarlegu. Páll Vilhjálmsson rakti ástandið í heiminum milli stórra valdablokka eins og Rússlands, Kína, ESB og Bandaríkjanna. Hann segir afleiðingu af brölti ríkisstjórnarflokkanna leiða til klofnings þjóðarinnar í ESB fylkingu og aðra fylkingu hlynnta Bandaríkjunum. Ísland verði aldrei neitt annað en spilapeningur í valdatafli þeirra stóru. 

„Síðast þegar ófriður var á Íslandi var á Sturlungaöld. Sá ófriður endaði með að við misstum sjálfstæðið og fengum það ekki fyrr en 600 árum síðar.”