Yfirmaður franska hersins: „Í dag búum við okkur undir stríð“

Chief of Staff of the French armed Forces Fabien Mandon attends a video conference of the 'Coalition of the Willing' on Ukraine at the Elysee Palace in Paris, France, Tuesday, Nov. 25, 2025. (Julien de Rosa, Pool Photo via AP)

„Evrópa hefur til ársins 2030 í stríð – Rússland er stærsta ógnin”

Breaking Defense greinir frá því að Fabien Mandon, yfirmaður franska hersins hafi lýst því yfir, að Frakkland og Evrópa hafa fjögur ár til að undirbúa sig fyrir stríð. Mandon nefndi Rússland sem stærstu ógn Evrópu.

Í ræðu sinni á ráðstefnu Nató í París 2.-3. febrúar sagði Mandon að Frakkland og bandamenn landsins yrðu að taka tillit til þess að stríð myndi brjótast út í náinni framtíð og að franski herinn yrði að vera tilbúinn fyrir árið 2030.

Hann sagði:

„Í dag búum við okkur undir stríð“

Í ræðu sinni á sjóherráðstefnunni sagði Mandon að Frakkland væri ekki undirbúið fyrir stríð og að landið hefði „ófullnægjandi fjölda skipa og vopna.“ Hann sagði að þjóðin þyrfti „fleiri eldflaugar með meiri drægni og tortímingarmætti.“

Mandon komst nýlega í fréttirnar fyrir að segja að Evrópubúar og Frakkar yrðu að vera tilbúnir að missa börnin sín í stríðinu gegn Rússlandi, því það væri nauðsynlegt til að sigra Rússland. Hann sagði í ræðu í nóvember:

„Þið verðið að sætta ykkur við að þið munið missa börnin ykkar.“

Orð hans sendu sjokkbylgju um allt Frakkland og neyddust stjórnmálamenn til að gagnrýna harðlega athugasemd hans.