Loftslagsfjötrar ESB – svo er Trump kennt um allt

Screenshot

Í leiðara Mbl. 9. febrúar er rætt um ógn við flugsamgöngur til og frá Íslandi. Vitnað er í tillögur Viðskiptaráðs um varanlega lausn Íslands innan hins svo kallaða ETS-útblásturskerfis ESB og verður ekkert gert, þá mun kostnaður íslenskra fyrirtækja fimmfaldast á næstu árum í 25 milljarða króna. Þetta íþyngir rekstri þeirra sem síst skyldi og ógnar afkomu Flugleiða og annarra stórra flutningafyrirtækja og skipaflotans.

Tillögur Viðskiptaráðs eru að í fyrsta lagi fá varanlega sérlausn Íslands innan kerfisins, í öðru lagi að innleiðing umhverfisviðauka EES-samningsins og ETS verði endurskoðað og í þriðja lagi að almennum verndarráðstöfunum samkvæmt EES-samningnum verði beitt ef aðrar leiðir dugi ekki til. Það er bráðnauðsynlegt að málið verði sett í forgang til að koma í veg fyrir skaðlegar afleiðingar svo kallaðrar núll-losunar.

Samtímis birti Mbl. grein undirritaðs um ranga orkustefnu Íslands sem er á sömu nótum undir fyrirsögninni „Röng orkustefna Íslands ekki sök Trumps.“ Þar er bent á að enginn vísindamaður hefur getað sýnt fram á að koltvísýringur sem er undirstaða lífs á jörðinni hiti upp andrúmsloft jarðar. Mannskepnan lætur frá sér um þrjú prósent og ef þessi þrjú prósent hækka andrúmsloftið um tvær gráður, þá ætti jörðin að vera orðin að eyðimörk fyrir löngu, vegna þeirra 97% sem náttúran sjálf býr. Vitnað er í furðulega rafmagnsreikninga í Svíþjóð til notenda, þar sem rafmagnið er komið undir helming gjaldsins og fer minnkandi. Spáð er miklum hækkun á rafmagni til almennings og fyrirtækja innan ESB fram að 2030.

„Útlitið er kolsvart, fyrirtæki leggja upp laupana og eins og í Bretlandi yfir vetrarmánuðina verða þeir efnaminni að velja milli hungurs og kulda.“ 

Það hefur verið merkilegt að fylgjast með ásókn íslenskra ráðamanna til höfuðstöðva Sameinuðu þjóðanna í New York til þess að baða sig í ljóma aðalritarans António Guterres. Hann missti nýlega röddina vegna þess að Bandaríkjamenn eru hættir að eyða peningum í hið spillta skriffinnskubákn.

„Guterres notaði pontuna áður til að hrópa yfir alheim að jörðin sé að farast úr hita, hún sé að brenna upp, allt sé á leiðinni til helvítis og að loftið sé orðið svo heitt að menn og dýr séu að stikna og enginn geti andað lengur. Af hverju á almenningur að vera að fjármagna þessa þvælu?“ 

Það er ekki við Trump að sakast að Íslendingar hafa gert slík mistök að skipta út farsælli stefnu í orkumálum og sitja núna kolfastir í kolefnisgjaldaneti ESB með síhækkandi gjöldum sem kæfa frumkvæði, hugvit og framtakssemi í landinu. Það sem þurfti til að plata stjórnvöld inn í kerfið var að í byrjun var sagt, að af því að Íslendingar hefðu svo hreina orku, þá gætu þeir grætt gull og græna skóga á því að selja frelsisbréf til orkufyrirtækja á meginlandinu sem framleiddu rafmagn með „skítugum“ kolum. Íslendingar gleyptu agnið og hófu sölu kolefnisbréfa til ESB og landsmenn fengu í staðinn að sjá á rafmagnsreikningum sínum að þeir keyptu rafmagn framleitt með kjarnorku.

Með orkupökkum breyttu íslensk stjórnvöld farsælli orkustefnu Íslands og tóku upp orkustefnu ESB í staðinn. Sú stefna á ríkastan þátt í því efnahagslega volæði sem herjar í aðildarríkjum Evrópusambandsins. 250 milljarðar á 13 árum af skattfé Íslendinga í loftslagsgjöld væri betur varið í annað.

Síðan er andmælt uppbyggingu vindmylla á Íslandi og vitnað í rannsóknir í Svíþjóð sem sýna fram á að vindorka er „langvarandi óarðbær iðnaður.“ 

„Græna svindlið kemur þungt niður á fyrirtækjum og almenningi. Í Svíþjóð fór rafgeymaframleiðandinn Northvolt á hausinn í stærsta gjaldþroti nútímans í Svíþjóð. Fyrirtækið framleiddi aldrei neina rafgeyma. Núna er flaggskip grænu hugmyndafræðinnar, stálfyrirtækið Stegra á barmi gjaldþrots. Það átti að framleiða kolefnislaust stál og fer líklega á hausinn án þess að framleiða eitt gramm. Verður það gjaldþrot stærra en hið fyrra og talað er um að lækka verði ellilífeyri Svía í framtíðinni til að borga tapið.“ 

Jafnvel þótt Donald Trump, Bandaríkjaforseti, hyrfi af sviðinu, myndi það ekki laga ranga orkustefnu Íslands eða Evrópusambandsins. Það er jafnarðbært fyrir grænu víkingana og það var fyrir íslensku útrásarvíkingana að stela fé úr vösum skattgreiðenda gegnum ríkisstyrki og bankalán með ríkisábyrgð.

Út á það gengur græna svindlið.

Gústaf Adolf Skúlason