Koltvísýringur er saklaus – Græna svindlið ekki

Sífellt fleiri vísindamenn afhjúpa græna svindlið. Það er ekki koltvísýringur sem er sökudólgurinn heldur blekkingin um að hann sé það. Ef heimurinn stæði raunverulega frammi fyrir loftslagsslysi, þá myndu stjórnmálamenn virkilega búa sig undir það með því að auka fæðuöryggið og orkuöryggið. En það gera þeir ekki. Í staðinn gera þeir hið gagnstæða. „Nettó núll“ stefnan leiðir til minna fæðu- og orkuöryggis segir loftslagsvísindakonan Anna Sweetland í viðtali hjá GB News (sjá X að neðan).

Loftslagsfræðingurinn Anika Sweetland segir frá því hvernig hún breyttist úr aðgerðarsinna gegn hamfarahlýnun í efasemdakonu um græna svindlið. Þegar hún var í námi fékk hún kennslu í hinum venjulegu loftslagsógnum: Jörðin er að brenna, við munum öll stikna og erum á leiðinni til helvítis. Hún þjáðist af loftslagshræðslu, lá andvaka um nætur og velti því fyrir sér hvar óhætt væri að búa í framtíðinni, vegna meints hækkandi sjávarborðs og matarskorts.

En þegar hún vann eftir núlllosun stefnunni, þá fór hún að skilja hvað var að gerast í raun og veru. Hún segir:

„Ég gerði mér grein fyrir því að ef stjórnvöld tryðu því virkilega, að loftslagshamfarir væru í vændum, þá myndu þau undirbúa sig eins og þau myndu gera fyrir aðrar náttúruhamfarir, þ.e.a.s. auka fæðuöryggi og auka orkuöryggi. Hreint núll gerir í raun og veru nákvæmlega hið gagnstæða. Þá féllu allir bitar á sinn stað.

Vísindin standast ekki. Samkvæmt Anika Sweetland er koltvísýringur í raun mjög góður fyrir plánetuna. Það gerir plánetuna grænni. Koltvísýringur er næring fyrir gróðurinn.

„Ég lenti í heilaþvotti og trúði því að þetta væri ill lofttegund.… Nýleg rannsókn… hefur sýnt að það magn hita sem kolmónoxíð getur valdið er takmarkað. Það kallast mettunarstig. Það er nú þegar við 99% af þessum mörkum svo það er sama hversu miklum koltvísýringi við dælum út í andrúmsloftið, jörðin verður ekki hlýrri.

Það er virkilega gott. Við þurfum því ekki í reynd að óttast þessa hörmulegu dómsdagssögu sem hefur verið dreift undanfarin 60 ár. Hún er ekki sönn.