Samnytt greinir frá því að 36 ára gamalla Líbanesi í Malmö er grunaður um að hafa misþyrmt eiginkonunni svo alvarlega og hún neyddist til að fá læknisaðstoð og vera saumuð á sjúkrahúsinu sem hún vann á. Nokkrum vikum síðan kom arabinn aftur í heimsókn á vinnustað konunnar, vegna þess að honum þótti ógnvekjandi fyrir sambúðina að hún ynni með karlmönnum. Hann réðst á karlmann sem var læknir, skallaði hann í gólfið, beit og sló í andlitið og reyndi að stinga út augu læknisins með berum fingrunum. Maðurinn er ákærður fyrir árásirnar.
5. desember 2025 sótti konan um læknisaðstoð á vinnustað sínum, heilsumiðstöð í Malmö, eftir að hafa fengið skurð á höfuðið sem blæddi úr. Konan var með slæðu og reyndi að fela sárið en var í áfalli. Hún hélt því fram að maður hennar, Salaheddine Hamze 36 ára gamall, hefði ekki misþyrmt henni en vinnufélagarnir sáu að hún var dauðskelkuð og skildu að ástandið á heimilinu var ekki upp á það besta. Samkvæmt skýrslu lögreglunnar barði maðurinn hana í höfuðið með hlut sem olli sárinu á höfði hennar.
20. desember kom líbanski eiginmaðurinn í heimsókn á heilsumiðstöðina og réðst beint á einn læknanna. Margir starfsmenn urðu vitni að árásinni, þar sem Hamze sló með hnefum í andlit læknisins og skallaði hann niður á gólf. Þar hélt hann misþyrmingunum áfram, meðal annars með því að stinga fingrum í augu læknisins og beit hann í hálsinn. Starfsmenn á staðnum lýstu Hamze sem bandóðum manni og einn læknir reyndi að stöðva árásina en Hamze sparkaði honum á nærliggjandi ofn.
„Bíddu þangað til við komum heim“
Eftir barsmíðarnar fór Salaheddine Hamze út og kveikti sér í sígarettu. Hann hrópaði á konu sína á leiðinni út: „Bíddu þangað til við komum heim.“ Þá lá læknirinn alblóðugur á gólfinu. Sem betur fór tókst fljótlega að gera lögreglunni viðvart sem var snögg á staðinn og handtók manninn.
Salaheddine Hamze er ákærður fyrir héraðsdómi í Malmö, grunaður um tvö líkamsárásarmál. Hann vísar ásökunum á bug og heldur því fram að það sé hann sem hafi orðið fyrir tilefnislausri árás af læknakollega konunnar. Að sögn Líbanesans reyndi læknirinn og einn kvenkyns samstarfsmaður hennar „að fá konuna andsnúna mér svo hann geti hafið náið samband við hana.“ Varðandi sárið á höfði konunnar segir Hamze að „hún var að skúra og datt á skáp.“
