Yfirvöld Ungverjalands segja að aðgerðir yfirvalda í Úkraínu ógni orkuöryggi og fullveldi Ungverjalands. Úkraína er „óvinur okkar núna vegna þess að hún er að grípa til fjandsamlegra aðgerða gegn okkur“ sagði Péter Szijjártó, utanríkisráðherra Ungverjalands, á þriðjudag. Markar yfirlýsingin aukna spennan milli Búdapest og Kænugarðs vegna komandi þingkosninga í apríl í Ungverjalandi.
Szijjártó varaði við því að hvert það land sem grefur undan öryggi og fullveldi Ungverjalands yrði meðhöndlað í samræmi við það.
„Svo lengi sem við höfum fullvalda þjóðstjórn geta þau ekki búist við að geta framfylgt vilja sínum. Hver sem vill grafa undan öruggum rekstri, orkuöryggi og fullveldi Ungverjalands er að grípa til fjandsamlegra aðgerða gegn okkur. Hver sem gerir þetta er óvinur okkar. Úkraína er óvinur okkar núna vegna þess að hún er að grípa til fjandsamlegra aðgerða gegn okkur. Við getum ekki, og munum aldrei leyfa þetta.“
Athugasemdir utanríkisráðherrans voru í takt við yfirlýsingar Viktor Orbán forsætisráðherra nokkrum dögum áður á mótmælafundi gegn Úkraínustríðinu í Szombathely, þegar hann sakaði Úkraínu um að beita sér fyrir því í Brussel að loka á rússneska orku til Ungverjalands. Orbán sagði:
„Úkraínumenn verða að hætta við eilífar kröfur sínar í Brussel um að aftengja Ungverjaland frá ódýrri rússneskri orku. Svo lengi sem Úkraína heldur fast við þetta, þá gengur óvinur okkar gegn grundvallarhagsmunum okkar.“
Samskipti ríkjanna tveggja hafa versnað jafnt og þétt á undanförnum vikum. Stjórnin í Búdapest hefur sakað stjórnina í Kænugarði um að reyna að skipta sér af kosningunum í Ungverjalandi 12. apríl, sem almennt er talið að verði ein erfiðasta kosningabarátta Fidesz-flokks Orbáns hingað til gegn að mestu leyti sameinaðri stjórnarandstöðu sem nýtur stuðnings ESB.
Í færslum á samfélagsmiðlum í síðasta mánuði fullyrti Orbán að Ungverjaland sæti undir „daglegum hótunum frá Úkraínu“ og nefndi sérstaklega Volodymyr Zelensky forseta, Andrii Sybiha utanríkisráðherra og úkraínska öryggisþjónustuna.
„Þetta mun halda áfram fram að kosningunum“ skrifaði Orbán og sagði að stjórn Úkraínu vildi skipta út stjórn sinni fyrir „hliðholla stjórn“ í Ungverjalandi. Hann vísaði meðal annars til gullklósetta úkraínskra stórsvindlara:
„Við höfum ekki verið að sækjast eftir neinum deilum en Ungverjaland hefur verið skotmark í marga daga. Ungverjaland mun ekki láta aftra sér frá því að verja þjóðarhagsmuni okkar.
Við munum heldur ekki senda peninga til Úkraínu, sem er í betri stöðu með baðherbergi ólígarka en ungverskar fjölskyldur eiga kost á.“
Hann hafnaði alfarið öllum tillögum um að banna innflutning á rússneskri olíu og gasi og varaði við aðild Úkraínu að Evrópusambandinu og hélt því fram að sú aðild myndi „einnig flytja inn stríðið.“
„Svo lengi sem Ungverjaland hefur eigin þjóðlega stjórn, þá verða ákvarðanir um þessi mál hvorki leyst í Kænugarði eða Brussel.“
