Yfirlýsing Trumps varðandi Grænland

Trump sendi frá sér eftirfarandi yfirlýsingu frá Davos eftir fund með Mark Rutte, aðalritara Nató:

„Á grundvelli mjög gefandi fundar sem ég hef átt með framkvæmdastjóra Nató Mark Rutte, þá höfum við mótað ramma fyrir framtíðarsamning varðandi Grænland og í raun allt Norðurskautslandið. Ef þessi lausn tekst, þá verður hún frábær fyrir Bandaríkin og öll Nató-ríkin. Á grundvelli þessa skilnings mun ég ekki leggja á tolla sem áttu að taka gildi 1. febrúar. Frekari umræður eru í gangi varðandi Gullnu (varnar) hvelfinguna hvað varðar Grænland. Frekari upplýsingar verða gerðar aðgengilegar eftir því sem umræðurnar þróast. Varaforsetinn J.D. Vance, utanríkisráðherrann Marco Rubio, sérstakur sendiherra Steve Witkoff og ýmsir aðrir eftir þörfum, munu bera ábyrgð á samningaviðræðunum — þeir munu skýra frá þeim beint til mín. Þakka þér fyrir athygli þína á þessu máli!“

Fara efst á síðu