Glóbalistar Davos, SÞ, ESB og Starmer hafa hrætt líftóruna úr landsmönnum sínum með áróðri um að ef það verði friður í Úkraínu mun „Rússinn koma“ og drepa alla í Evrópu. Í Davos komu hins vegar Bandaríkjamenn og flengdu glóbalistana svo þeir fara heim með rauðan rassinn. Brjálæðislegar kenningar þeirra um „hamfarahlýnun, opin landamæri, æfing í meðvirkni og hlýðni jarðarbúa við Covid-skipun frá Alþjóðaheilbrigðismálastofnun Bill Gates, árásir á konur með því að hleypa karlmönnum með gervibrjóst í búningsklefa kvenna og í kvennaíþróttir og útskipti íbúa þjóðríkja með fólki frá þriðja heiminum“ hafa eyðilagt Evrópu og voru á góðri leið með að eyðileggja Bandaríkin.
Gegn þessu öllu hafa Bandaríkjamenn risið og fyrir löngu orðnir hundleiðir á. Aðkoma Bandaríkjanna er ferskur vindur í því rotnaða búrókratíska hreiðri sem alþjóðastofnanir eins og WEF, SÞ og ESB hafa orðið. Leiðtogar ESB eru svo morknir að þeir hafa lokað sig af út í horni reiðubúnir að fórna eigin landsmönnum í heimsstyrjöld við Rússland svo þeir sjálfir geti hangið mínútu lengur við völd. ESB hefur tekið lýðræðið úr sambandi og er í fullkomnum fasískum jarðvegi sem valkyrjurnar á Íslandi vilja ólmar kaffæra Ísland í.
Allt þetta lið, þetta hyski sem stendur gegn Trump í friðarviðleitni hans í Úkraínu og hótar eigin landsmönnum með rússneskum dauða nema að Úkraínustríðið fái að halda áfram, var á nokkrum mínútum sýnt nakið í heimsku sinni og svikum við lýðræðið og almenning. Bæði bæði þegar viðskiptaráðherra Bandaríkjanna og Trump forseti töluðu, sýndu þeir fram á þann skaða sem m.a. núll-losunarstefnan hefur haft á efnahagslíf og orkuframleiðslu ESB. Að vera sjálfstæð þjóð er ekki það sama og að vera einangruð þjóð eins og glóbalistarnir hrína. Sjálfir geta þeir ekki einu sinni lyft símtólinu til að hringja í Pútín til að reyna að koma á friði í Úkraínu. 25 -30 þúsund eru drepnir mánaðarlega í Úkraínu og virðist sláturhúsið bara vera skemmtigarður fyrir glóbalistana í ESB.
Jafnvel hesturinn hlær
Breski stjórnmálamaðurinn George Galloway finnst áróðurinn um að „Rússarnir séu að koma“ hlægilegur: Það eru Bandaríkjamenn, ekki Rússar, sem eru að koma. Hann skrifaði á X:
„Alla okkar ævi hefur okkur verið sagt að Rússarnir séu að koma, Rússarnir séu að fara að ráðast inn í Evrópu. Við höfum eytt milljörðum í herbúnað, við höfum eignast kjarnorkuvopn vegna þess að Rússarnir eru að koma. Og svo kemur í ljós að það eru Bandaríkjamenn sem eru að koma og Rússar hafa engan áhuga á málinu.
Maður verður að hafa hjarta úr steini til að hlæja ekki. Þetta er nóg til að fá hest til að hlæja.“
