Soros yngri á staðnum til að berjast gegn Trump

Alex Soros er í Davos eins og margir aðrir glóbalistar til dæmis Gavin Newsom, fylkisstjóri Kaliforníu, sem er bandamaður Soros í árásum glóbalista á Trump. Gavin virðist stefna á að verða forsetaframbjóðandi Demókrataflokksins og leggur mikið upp úr því að sjást opinberlega til að leggja lykkjur á leið Trumps til friðar og velferðar. Davos er enn á ný leiksvið heimsmálanna þar sem baráttan um völd og peninga fer fram.

Alex Soros eða Soros yngri er sonur milljarðamæringsins George Soros og arftaki hins áhrifamikla alþjóðlega Soros-netverks, Opinna samfélaga. Í færslu á X hyllir hann fjálglega Newsom:

„Frábært að hitta raunverulega stjörnu hér á Alþjóðaefnahagsráðinu 2026, vin minn Gavin Newsom. Svo ánægður að hann sé hér og gagnrýnir leiðtoga heimsins sem halda að eftirgjöf virki þegar kemur að Trump. Það gerir það ekki. Það gerir hann bara meira ruglaðan og eyðileggjandi.“

Soros heldur áfram:

„Leiðtogar heims ættu að næla sér í síður úr Newsom bókinni. Það er kominn tími til að standa uppréttir, staðfastir og sameinaðir – áður en það er of seint.“

Newsom: „Evrópa er meðvirk“

Á þriðjudag réðst Gavin Newsom á evrópska leiðtoga, að því er The Guardian greinir frá. Hann segir í yfirlýsingu að „Evrópa sé samsek“ kröfu Donalds Trumps um yfirráð yfir Grænlandi. Newsom sagði við blaðamenn:

„Trump svíkur evrópska leiðtoga, Tilraunir þeirra að semja við Bandaríkjaforseta eru ekki diplómatí, þær eru heimskulegar. Það er kominn tími til að taka sig saman, það er kominn tími til að taka hlutina alvarlega og hætta að vera meðvirk. Ég þoli ekki þessa meðvirkni sem fólk veltir sér upp úr.“

Sú staðreynd að Alex Soros styður opinberlega árásir Newsom er af gagnrýnendum talið vera enn eitt dæmið um hvernig áhrifamiklir aðilar nota Davos sem pólitískan megafón. Soros hefur sjálfur birt færslur frá fundinum með myndum af sér og öðrum þátttakendum í „óformlegum viðræðum.“

Þegar Alex Soros notar núna Davos opinberlega sem vettvang til að hylla og kynna pólitíska bandamenn sína, þá verður myndin skýrari en nokkru sinni fyrr. Alþjóðaefnahagsráðið er enginn hlutlaus fundarstaður, heldur vettvangur ofurvalds, þar sem milljarðamæringar, aðgerðasinnar í fjármálageiranum og stjórnmálamenn vinna saman að því að knýja í gegn alþjóðlega dagskrá án umboðs almennings.

Davos virkar í reynd sem miðstöð óformlegrar valdbeitingar, þar sem pólitískar línur eru prófaðar, efldar og gerðar að stefnu sem er ofar þjóðþingum og áhrifum kjósenda. Ef Trump og almenningur Vesturlanda fá að ráða, þá verður almenningur ekki gerður eignalaus, settur í 15 mínútna borgarfangelsi og lifir á engisprettum og pöddum.

Fara efst á síðu