World Economic Forum: Valdaelítan safnast enn á ný í Davos

Alþjóðaefnahagsráðstefnan 2026 hefst í næstu viku – og enn á ný safnast valdaelítan í heiminum saman fyrir bæði opnum og luktum dyrum í Davos. Ekki er vitað um hvort einhverjir Íslendingar verði á staðnum en áður hafa bæði Ólafur Ragnar Grímsson fv. forseti og Katrín Jakobsdóttir fv. forsætisráðherra heimsótt Davos og svo hefur Halla Tómasdóttir núverandi forseti haft tengsl við Davos en „aðeins á hliðarlínunni” að eigin sögn og aldrei í lokuðum herbergjum sem ekki eru aðgengileg fjölmiðlum eða almenningi.

Alþjóðaefnahagsráðið WEF heldur hina árlegu ráðstefnu í Davos í Sviss frá 19. til 23. janúar undir þemanu „Andi samræðna“ og verða margir helstu auðjöfrar heims og stjórnmálamenn saman komnir til að ræða þróun heimsmála. Klaus Schwab, faðir WEF, hefur látið af störfum sem guðfaðir ráðstefnunnar og er undir rannsókn meðal annars vegna kynferðislegrar áreitni gagnvart starfsfólki WEF. Árið 2025 neyddist hann til að stíga til hliðar og víkja fyrir forstjóra BlackRock.

Fimm megin atriði ráðstefnunnar

Á heimasíðu WEF má lesa eftirfarandi:

„Þegar leiðtogar koma saman á 56. ársfundinum frá 19. til 23. janúar munu þeir fjalla um fimm afgerandi spurningar fyrir árið 2026:

  • Hvernig getum við unnið saman í umdeildari heimi?
  • Hvernig getum við opnað nýjar vaxtarlindir?
  • Hvernig getum við fjárfest betur í fólki?
  • Hvernig getum við nýtt nýsköpun á stórum skala og á ábyrgan hátt?
  • Hvernig getum við byggt upp velmegun innan marka plánetunnar?”


Allar spurningarnar eru ræddar í ljósi þess að yfirþjóðlegir aðilar eigi að bregðast við. Lausnirnar þýða að fjölþjóðleg fyrirtæki, yfirþjóðleg samtök eins og ESB og Sameinuðu þjóðirnar fái vald til að ýta í gegn þeim ákvörðunum sem þarf til að „leysa“ vandamálin.

Donald Trump – hátindur ráðstefnunnar

Margir bíða spenntir eftir ræðu Donald Trumps á ráðstefnunni og umræðum um hana. Allt síðan varaforseti Bandaríkjanna, D J Vance hélt ræðu á öryggisráðstefnunni í Munich, Þýskalandi fyrir rúmu ári síðan má segja að ástandið í heiminum hafi gjörbreyst. Þar kynnti hann afstöðu Bandaríkjastjórnar til slappra bandamanna í Evrópu sem stunduðu ritskoðun á eigin borgurum og hleyptu inn erlendum glæpamönnum í samfélög sín. Donald Trump hélt afdrifaríka ræðu hjá Sameinuðu þjóðunum 23. september, þar sem búið var að trixa við rúllutröppur sem stoppuðu á miðri leið, míkrófónar virkuðu ekki í byrjun og svo framvegis. Trump gagnrýndi slappleika Sameinuðu þjóðanna og nýlega skrifaði hann undir forsetaskipun um að Bandaríkin dragi sig úr yfir 30 stofnunum SÞ.

Kreppuskýrsla WEF

WEF skiptur sjóndeildarhringnum upp í kreppur og stigsetur eftir því hverjar er mikilvægast að leysa samkvæmt þeirra mati. Hér má hlaða niður kreppuskýrslu WEF

Meðal gesta verða:

Stjórnmálaleiðtogar

Donald Trump, President of the United States of America; Mark Carney, Prime Minister of Canada; Friedrich Merz, Federal Chancellor of Germany; Ursula von der Leyen, President of the European Commission; He Lifeng, Vice-Premier of the People’s Republic of China; Javier Milei, President of Argentina; Prabowo Subianto, President of Indonesia; Pedro Sánchez, Prime Minister of Spain; Guy Parmelin, President of the Swiss Confederation 2026; Vahagn Khachaturyan, President of the Republic of Armenia; Ilham Aliyev, President of the Republic of Azerbaijan; Bart De Wever, Prime Minister of Belgium; Gustavo Petro, President of Colombia; Félix-Antoine Tshisekedi Tshilombo, President of the Democratic Republic of the Congo; Daniel Noboa Azín, President of Ecuador; Alexander Stubb, President of Finland; Kyriakos Mitsotakis, Prime Minister of Greece; Micheál Martin, Taoiseach, Ireland; Aziz Akhannouch, Head of Government, Kingdom of Morocco; Daniel Francisco Chapo, President of Mozambique; Dick Schoof, Prime Minister of the Netherlands; Mian Muhammad Shehbaz Sharif, Prime Minister of Pakistan; Mohammed Mustafa, Prime Minister of the Palestinian National Authority; Karol Nawrocki, President of Poland; Mohammed Bin Abdulrahman Al Thani, Prime Minister and Minister of Foreign Affairs of the State of Qatar; Aleksandar Vučić, President of Serbia; Tharman Shanmugaratnam, President of Singapore; Isaac Herzog, President of the State of Israel; Ahmad Al Sharaa, President of Syria; Volodymyr Zelenskyy, President of Ukraine.

Yfirmenn alþjóðastofnana:

António Guterres, Secretary-General of the United Nations; Ngozi Okonjo-Iweala, Director-General of the World Trade Organization; Ajay S. Banga, President of the World Bank Group; Kristalina Georgieva, Managing Director of the International Monetary Fund; Mark Rutte, Secretary-General of the North Atlantic Treaty Organization; Tedros Adhanom Ghebreyesus, Director-General of the World Health Organization; Alexander De Croo, Administrator of the United Nations Development Programme; Mathias Cormann, Secretary-General of the Organisation for Economic Co-operation and Development; Doreen Bogdan-Martin, Secretary-General of the International Telecommunication Union; Barham Salih, UN High Commissioner for Refugees; Jasem Al Budaiwi, Secretary-General of the Gulf Cooperation Council.

Forystumenn tæknifyrirtækja:

Jensen Huang, NVIDIA; Satya Nadella, Microsoft; Dario Amodei, Anthropic; Dina Powell McCormick, Meta; Demis Hassabis, Google DeepMind; YoshuaBengio, Université de Montréal; Alex Karp, Palantir Technologies; SarahFriar, OpenAI; YuvalHarari, Centre for the Study of Existential Risk; Khaldoon Khalifa Al Mubarak, Mubadala; PeggyJohnson, Agility Robotics; Arthur Mensch, Mistral AI; BretTaylor, Sierra; PengXiao, G42; EricXing, Mohamed bin Zayed University of Artificial Intelligence.

Forystumenn alþjóðasamtaka:

David Miliband, President and CEO, International Rescue Committee; Sania Nishtar, CEO, Gavi, The Vaccine Alliance; Luc Triangle, General Secretary, International Trade Union Confederation; Kirsten Schuijt, Secretary General, WWF International; Mohammad Al-Issa, Secretary General, Muslim World League; Comfort Ero, President and CEO, International Crisis Group; Pinchas Goldschmidt, Chief Rabbi and President, Conference of European Rabbis; Oleksandra Matviichuk, Nobel Peace Laureate and Chair, Ukraine Center for Civil Liberties; Peter Sands, Executive Director, The Global Fund; Amitabh Behar, Executive Director, Oxfam International; Aulani Wilhelm, President and Executive Director, Nia Tero.

Sjónvarpað verður frá ráðstefnunni í sjónvarpi og á samfélagsmiðlum.

Fara efst á síðu