Evu Vlaardingerbroek bannað að koma til Bretlands

Fá lönd faðma pólitíska rétttrúnaðinn jafn þétt og Bretland. Yfirvöld elta uppi einstaklinga í besta göbbels stíl sem hafa birt eitthvað „óviðeigandi“ á samfélagsmiðlum og í ofanálag eru þau farin að banna fólki frá öðrum löndum að koma til Bretlands sem gagnrýna ríkisstjórnina.

Hin hispurslausa Eva Vlaardingerbroek er orðin heimsþekkt fyrir vammlausa umræðu og gagnrýni á valdhafa sem traðka á mannréttindum almennings ekki síst í Hollendi þar sem hún fæddist. Fyrir utan að gagnrýna útskipti íbúanna með innfluttum íslamistum, þá stóð hún í fararbroddi fyrir baráttu bænda gegn eignaupptöku Mark Ruttes, sem varð að hrökklast frá sem forsætisráðherra Hollands áður en Nató tók hann upp á arma sína.

Á miðvikudag frétti Vlaardingerbroek að rafrænt ferðaleyfi hennar (ETA) til Bretlands hefði verið afturkallað. Með fylgdi útskýring:

„Viðvera þín í Bretlandi er ekki talin vera til góðs fyrir almannaheill.“

Afturköllun ferðaleyfisins kemur aðeins þremur dögum eftir að Eva Vlaardingerbroek birti færslu um forsætisráðherrann Keir Starmer sem hefur fengið næstum tvær milljónir áhorfa. Hún telur að kannski gæti færslan haft eitthvað að gera með ferðabannið.

Í færslunni gagnrýnir hún hótun Starmer um að loka X með vísan til „öryggis kvenna“ á meðan breskar konur og stúlkur halda áfram að verða fyrir kynferðisofbeldi af hálfu innfluttra nauðgara:

Fara efst á síðu