Trump mun þvinga Alþjóðaefnahagsráðið WEF til undanhalds

Nýtt myndskeið er á netinu (sjá Youtube að neðan) sem varpar ljósi á samband Donalds Trumps Bandaríkjaforseta og alþjóðaelítunnar fyrir komandi ráðstefnu WEF 19-23. janúar í Davos. Donald Trump verður einn af vestum ráðstefnunnar og bíða margir eftirvændintarfullir eftir að fá að heyra boðskap Bandaríkjaforseta sem nýlega dró Bandaríkin úr 66 alþjóðastofnunum vegna óreiðu, spillingar og óskilvirkra starfshátta. Í myndinni fjallar Susan Kokinda um efnahags- og utanríkisstefnu Donalds Trumps og baráttuna gegn þeirri ógnarstjórn sem glóbalistar vilja koma á í heiminum.

Með því að forgangsraða þjóðlegum sjálfsákvörðunarrétti, endurnýjun viðskiptasamninga og bandarískar efnahagslegar áherslur gengur stefna Bandaríkjanna þvert á alheimsstjórnarhugmynd WEF og höfuðverkefni þeirra: Endurræsinguna miklu. Átökin snúast um fullveldi sjálfstæðra þjóða eða alþjóðahyggju, þar sem þjóðir framselja fullveldi til alþjóðlegra stofnana, þar sem allar ákvarðanir eru teknar af lýðræðislega ókjörnum embættismönnum.

Myndin lýsir því hvernig stjórn Trumps fjarlægir sig frá mörgum alþjóðlegum samstarfsaðilum og samtökum sem reyna að ná stjórn á þjóðum heims eins og til dæmis Alþjóðaheilbrigðismálastofnun Sameinuðu þjóðanna WHO. Ráðstefna WEF í Davos er vettvangur uppbyggingu alþjóðlegs valds, þar sem stjórnmálaleiðtogar, stórfyrirtæki og fjármálaaðilar hittast til að ræða framtíð heimshagkerfisins og Endurræsinguna miklu. Trump gengur því beint inn í hreiður glóbalismans með því að mæta á fundinn.

Susan Kokinda spyr hvort Davos sé tilbúið fyrir Donald Trump og segir:

„Eftir innan við tvær vikur mun forsetinn leiða allt sitt efnahagsteymi inn á Alþjóðaefnahagsráðstefnuna í Sviss. Það má segja að hann sé að ganga inn í ljónagryfjuna, nema hvað að hann er ljónið. Og glóbalistarnir vita það.

Í gær öskraði New York Times að Donald Trump hefði sett sig ofar alþjóðalögum. Þeir skrifuðu í grein eftir grein að Trump forseti gerði það ljóst að engin alþjóðalög eða samningar takmörkuðu völd hans. En það eru ekki alþjóðalögin sem þeir hafa áhyggjur af. Heldur allt glóbalistakerfi þeirra. Og það er það sem Trump var í raun að segja New York Times. Og það er nákvæmlega það sem hann ætlar að segja hinni svo kölluðu alþjóðaelítu í Davos.

Trump hefur lamað óhreinan peningaþvott glóbalismans í Karíbahafinu með aðgerðunum í Venesúela. Hann hefur lýst yfir stríði á hendur alþjóðahringjum og hefur dregið sig úr 66 alþjóðastofnunum sem framfylgja stefnu glóbalismans.”

Smelltu á spilarann hér að neðan til að horfa á myndskeiðið:

    Fara efst á síðu